Golf

„Aldrei grátið eins mikið og síðastliðinn mánuð“

Sindri Sverrisson skrifar
Kevin Na og Jason Kokrak í viðtalinu eftir að hafa unnið sigur í gær.
Kevin Na og Jason Kokrak í viðtalinu eftir að hafa unnið sigur í gær. Getty/Cliff Hawkins

Tveir vinir kylfingsins Kevins Na hafa fallið frá síðasta mánuðinn og hann minntist þeirra í tilfinningaþrungnu viðtali eftir að hafa ásamt Jason Kokrak unnið sigur á QBE Shootout paramótinu í golfi í gær.

Na og Kokrak fengu fugla á 12 af síðustu 13 holunum þegar leikið var í fjórbolta í gær, á lokadegi mótsins, og tryggðu sér þar með dramatískan sigur á mótinu sem er hluti af PGA-mótaröðinni. Þeir enduðu höggi á undan Billy Horschel og Sam Burns.

Klippa: Na og Kokrak áttu frábæran lokahring

Dramatískur sigurinn var þó Na ekki efstur í huga þegar hann mætti í viðtal í gær enda síðastliðinn mánuður verið honum afar erfiður.

„Ég missti tvo góða vini mína síðastliðinn mánuð. Annar þeirra var Kenny Lee, náungi frá Vegas [þar sem Na er búsettur] sem hefur þar mikil áhrif. Hinn er æskuvinur minn, Dusty Smith, sem ég ólst upp með og spilaði golf með í Western Hills golfklúbbnum í Kaliforníu.

Hann fékk hjartaáfall, og þetta hafði mikil áhrif á mig. Við eigum minningar um hann frá því að hann kom á The Masters, hann var kylfusveinn fyrir mig á U.S. Junior, U.S. Am og Pro Golf mótum,“ sagði Na.

„Ég hef aldrei grátið eins mikið og síðastliðinn mánuð. Ég held að hann hafi verið þarna uppi að hjálpa okkur. Mig langar að þakka þeim báðum og ég held að þetta hefði ekki verið mögulegt án þeirra,“ sagði Na.


Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×