Heimsmarkmiðin

Ísland kjörið í framkvæmdastjórn UNESCO

Heimsljós
Íslenska sendinefndin á aðalráðstefnunni: Guðrún Þorsteinsdóttir, Ragnar Þorvarðarson, Unnur Orradóttir Ramette, Elín Flygenring og Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir.
Íslenska sendinefndin á aðalráðstefnunni: Guðrún Þorsteinsdóttir, Ragnar Þorvarðarson, Unnur Orradóttir Ramette, Elín Flygenring og Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir. Utanríkisráðuneytið

Ísland hlaut flest atkvæði í kosningunni, eða 168 en 178 ríki greiddu atkvæði.

Ísland var kosið í framkvæmdastjórn Mennta-, vísinda og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í gær með yfirgnæfandi stuðningi á aðalráðstefnu stofnunarinnar sem nú stendur yfir í París. Innan Vesturlandahópsins voru Austurríki og Tyrkland einnig í framboði. Ísland hlaut flest atkvæði í kosningunni, eða 168 en 178 ríki greiddu atkvæði.

Ríkisstjórnin tók ákvörðun um framboðið árið 2018 og hefur fastanefnd Íslands hjá UNESCO, utanríkisráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið sem og íslenska UNESCO-landsnefndin unnið síðustu ár að því að efla störf Íslands innan stofnunarinnar. Í framkvæmdastjórn sitja 58 ríki og er almennt mikil samkeppni meðal hinna 193 aðildarríkja UNESCO um sæti í framkvæmdastjórn.

Stjórnin starfar með umboð frá aðalráðstefnu stofnunarinnar og ber m.a. ábyrgð á eftirfylgni ákvarðana, greinir starfs- og fjárhagsáætlun stofnunarinnar sem framkvæmdastjóri leggur fyrir, leiðbeinir um verkefni og sinnir eftirlitshlutverki með þeim.

UNESCO er sérstofnun SÞ sem hefur það að markmiði að stuðla að friði og öryggi í heiminum með því að efla alþjóðlega samvinnu í málaflokkum stofnunarinnar. UNESCO ber m.a. höfuðábyrgð innan SÞ-kerfisins á innleiðingu heimsmarkmiðs fjögur um menntun og er sú stofnun SÞ sem hefur sérstakt umboð til að efla tjáningar- og fjölmiðlafrelsi. Þá sinnir stofnunin margvíslegum verkefnum með áherslu á vísindi, menningu og menningararf og heldur m.a. úti hinni þekktu Heimsminjaskrá.

Framkvæmd heimsmarkmiða SÞ, jafnrétti, mannréttindamiðuð nálgun, virk þátttaka ungmenna og aðgengi allra (e. inclusion) verða rauður þráður í áherslum Íslands á meðan setu í framkvæmdastjórn stendur. Ísland mun vinna að því að UNESCO sé og haldi áfram að vera áhrifarík og skilvirk stofnun á sínu sviði og vinni eftir samræmdri stefnu, skilvirkum stjórnunarháttum og í góðu samstarfi við aðrar undirstofnanir SÞ. Ísland mun einnig styðja áframhaldandi endurbótastarf og þróun UNESCO með það að leiðarljósi að byggja enn frekar upp traust starf í þeim mikilvægu málaflokkum sem stofnunin sinnir.

Utanríkisráðuneytið gerði rammasamning við UNESCO árið 2019 sem fjallar um margvíslegan stuðning Íslands og samvinnu við UNESCO á sviði þróunarsamvinnu. Studd eru verkefni á sviði menntunar, tjáningarfrelsis og öryggis fjölmiðlafólks. Eitt af stærstu verkefnum Íslands í þróunarsamvinnu hefur nýlega færst frá Háskólum SÞ yfir á vettvang UNESCO og starfa nú fjórir skólar undir merkjum stofnunarinnar sem GRÓ, Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu. Þá eru fulltrúar Vigdísarstofnunar, alþjóðlegrar miðstöðvar tungumála og menningar á vettvangi UNESCO, í fjölþjóðlegum stýrihópi um áratug frumbyggjatungumála (e. International Decade of Indigenous Languages).

Framboð Íslands naut stuðnings Norðurlanda sem skipst hafa á um setu í stjórninni frá upphafi. Á stjórnartímabilinu eru fulltrúar Íslands ábyrgir fyrir samhæfingu og upplýsingamiðlun á meðal norrænna ráðuneyta og fastanefnda vegna málefnastarfs innan UNESCO.

Nánari upplýsingar á íslensku um starf UNESCO má finna á unesco.is

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×