Ég virðist þó aftur vera kolfallinn fyrir þessum gamla leik og get varla hætt að spila hann.
Netverjar hafa lengi gert grín að Bethesda fyrir að gefa Skyrim margsinnis út í gegnum árin fyrir nýjar tölvur og jafnvel tól en nú hefur verið gefin út sérstök tíu ára afmælisútgáfa leiksins vinsæla.
Árið 2013 kom út Skyrim – Legendary Edition. Árið 2016 kom út Skyrim: Special Edition og árið 2017 var leikurinn gefinn út fyrir Nintendo Switch. Ofan á það hefur hann einnig verið gefinn út fyrir sýndarveruleika.
Afmælisútgáfan er sum sé sjötta útgáfa Skyrim.
Engin brjáluð viðbót
Þessi útgáfa inniheldur upprunalega leikinn og þrjá aukapakka hans. Einnig má þar finna allt efni sem framleitt var í Creation Club, nýjar breytingar (Vopn, brynjur og annað) og þar að auki er nú hægt að veiða fisk í Skyrim.
Þetta er nú varla brjálæðislega mikið efni sem bætist við leikinn og í raun mun meira sem hverfur með því að nýja útgáfan skemmdi haug af svokölluðum „moddum“ eða heimagerðum viðbótum.
Ég áttaði mig þó fljótt á því að ég þurfti ekki neinar viðbótir að viti. Ég byrjaði að spila Skyrim af krafti og sé ekkert fram á að hætta í bráð.
Passa sig að verða ekki of kalt
Það helsta og mögulega besta sem bættist við leikinn kallast „Survival mode“ og snýr að því að hetjan manns þarf að borða sofa og passa sig að verða ekki of kalt.
Þetta getur gert skemmtilega mikið fyrir spilun Skyrim en ég slökkti þó temmilega fljótt á því hjá báðum Dragonborne sem ég er að spila Það var vegna þess að þetta var allt tiltölulega auðvelt og gerði í raun lítið annað en að hægja á spiluninni þegar á hólminn var komið.

Viðmótið enn ömurlegt, sko ÖMURLEGT!
Helsti glæpur Bethesda í þessari útgáfuorgíu þeirra á Skyrim er að hafa aldrei tekið til í viðmóti leiksins. Það hefur frá upphaffi verið algjörlega hræðilegt. Þá er ég að tala um þegar maður skoðar þá galdra sem maður kann eða skoðar draslið sem maður er búinn að taka upp á ferðinni um Skyrim. Þetta eru fjölmargir galdrar og heilmikið drasl.
Að skoða þetta í upprunalegu notendaviðmóti Skyrim er óþolandi. Ég reyndi fljótt að „modda“ það en nýja útgáfann kom í veg fyrir það og ég þurfti að setja leikinn upp á nýjan leik. Ég get ekki ýtt á I-takkann án þess að verða pirraður og það er slæmt, því maður er alltaf að ýta á þennan takka.
Sama gamla grafíkin
Grafík Skyrim var ekkert til að hrópa húrra fyrir þegar leikurinn kom út árið 2011 og það hefur ekkert breyst. Þetta er sama grafíkin að mesti leyti. Núna er samt hægt að veiða fisk. Það er eitthvað. Ég hef reyndar ekki prófað það enn, því Alduin drepur sig ekki sjálfur.
Það er þó töluvert af nýjum og áhugaverðum verkefnum til að leysa og áhugaverðum bókum til að lesa.
Hér má sjá smá yfirlit yfir það sem nýtt er í afmælisútgáfunni.
Samantekt-ish
Ég vissi ekki að ég saknaði Skyrim fyrr en ég byrjaði að spila hann um daginn. Það fer eiginlega smá í taugarnar á mér en ég verð að segja að ég hef verið að skemmta mér konunglega. Það er enn skemmtilegt að bjarga íbúum Skyrim og Tamriel frá Alduin.
Það allra versta við það að hafa dottið aftur í Skyrim er þó það hvað það er líklega langt í Elder Scrolls 6. Við fáum þó Starfield (geim-Skyrim) eftir ár, vonandi.
Í millitíðinni mun ég líklega halda áfram að dunda mér í Skyrim, þar til ég fæ aftur nóg.