Fótbolti

Þorsteinn: „Klárt mál að þetta verður mikilvægur leikur“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Þorsteinn Halldórsson segir að það hafi verið erfitt að velja hópinn fyrir komandi verkefni.
Þorsteinn Halldórsson segir að það hafi verið erfitt að velja hópinn fyrir komandi verkefni. Mynd/Skjáskot

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, kynnti í dag hópinn fyrir leikina tvo sem liðið leikur í undankeppni HM 2023 seinna í þessum mánuði. 

„Já, sem betur fer,“ sagði Þorsteinn, aðspurður að því hvort að erfitt hafi verið að velja hópinn. „Það er bara kostur að hafa úr mörgum að velja og gott að hafa það yfir sér og gott að blaðamenn geti komið og spurt spurninga um leikmenn. Það er bara gott fyrir mig.“

Íslensku stelpurnar mæta Tékkum þann 22. október, en Þorsteinn segir að um mjög erfiðan leik sé að ræða.

„Þetta er hörkulið, og þokkalega reynslumikið. Þær hafa verið á svipuðum stað seinustu sex eða sjö ár á þessum styrkleikalista ef maður horfir á það. En þetta er gott lið og verður verðugt og skemmtilegt verkefni.“

En hvað vill Þorsteinn sjá liðið gera betur frá seinasta leik gegn Hollendingum?

„Ég vill bara sjá okkur skapa fleiri færi og spila lengri kafla betur. Þetta var smá svona köflóttur leikur síðast. Þannig að maður vill sjá svona lengri góða kafla í leiknum.“

Þorsteinn vill ekki stilla leiknum gegn Tékkum upp sem einhverskonar úrslitaleik í riðlinum, en leggur þó áherslu á það hversu mikilvægur hann getur verið.

„Þetta er náttúrulega mikilvægur leikur. Það eru ekki margir leikir í þessum riðli. Þetta eru bara átta leikir og við erum búin að tapa einum þannig að þessi leikur skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli því að Tékkarnir eru fyrirfram í þessari röðun eiga þær að vera þriðja sterkasta liðið.“

„Þannig að það er klárt mál að þetta verður mikilvægur leikur.“

Viðtalið við Þorstein má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Þorsteinn Halldórsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×