Erlent

Vonarstjarna repúblikana í kröppum dansi

Kjartan Kjartansson skrifar
Kristi Noem er sökuð um að hafa misnotað vald sitt sem ríkisstjóri þegar hún tryggði dóttur sinni leyfi sem opinber matsmaður fasteigna.
Kristi Noem er sökuð um að hafa misnotað vald sitt sem ríkisstjóri þegar hún tryggði dóttur sinni leyfi sem opinber matsmaður fasteigna. AP/Charlie Neibergall

Ríkisstjóri Suður-Dakóta sem hefur verið talin rísandi stjarna innan Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum er nú í töluverðu klandri eftir að upp komst að hann hefði beitt sér á óeðlilegan hátt í þágu dóttur sinnar.

Kristi Noem hefur verið talin vonarstjarna innan Repúblikanaflokksins. Hún er 49 ára gömul, ríkisstjóri á fyrsta kjörtímabili og hefur ítrekað verið nefnd í samhengi við forval flokksins fyrir forsetakosningarnar árið 2024. 

Hún hefur verið ötul stuðningsmaður Donald Trump, fyrrverandi forseti, og hún þráaðist við að grípa til harðra aðgerða gegn kórónuveirufaraldrinum. Það hefur skapað henni vinsældir margra repúblikana jafnvel þó að dauðsföll í faraldrinum í fámennu Suður-Dakóta séu mörg miðað við höfðatölu. 

Gamanið hefur kárnað hjá Noem upp á síðkastið eftir að upplýst var að hún hefði beitt sér til þess að dóttir hennar fengi leyfi sem matsmaður fasteigna. Dótturinni var upphaflega synjað um leyfið. Noem kallaði þá á ríkisstarfsmanninn sem synjaði henni um leyfið á fund með sér og dóttur sinni sem fékk leyfið ekki löngu síðar. Starfsmaðurinn hætti störfum í kjölfarið.

Inn í vandamál Noem blandast sögusagnir um að hún haldi fram hjá eiginmanni sínum með Corey Lewandowski, fyrrverandi kosningastjóra Trump. Lewandowski er á sama tíma sakaður um að hafa áreitt fjárhagslegan stuðninigsmann Trump kynferðislega og lét hann af störfum hjá pólitískri aðgerðanefnd fyrrverandi forsetans í gær.

Dómsmálaráðherra sem varð manni að bana kannar málið

Jason Ravnsborg, dómsmálaráðherra Suður-Dakóta, fer nú yfir kvartanir ríkisþingmanna um fund Noem með dóttur sinni og ríkisstarfsmanninum sem synjaði henni um leyfið í fyrra.

AP-fréttastofan sagði frá því í vikunni að Noem hefði haldið fundinn skömmu eftir að ríkisstarfsmaðurinn synjaði dóttur hennar um starfsleyfi sem formlegur fasteignamatsmaður í fyrra. Dóttirin fékk leyfið fjórum mánuðum seinna.

Starfsmaðurinn sem stýrði stofnuninni sem fjallaði um umsóknina var þvingaður til þess að segja af sér í framhadlinu. Honum voru greiddir 200.000 dollarar, jafnvirði rúmra 26 milljóna íslenskra króna, til þess að hætta og draga kvörtun til baka.

Noem hefur neitað að svara spurningum um málið og talsmaður hennar segir fréttirnar pólitískar árásir á ríkisstjórann. 

Þó að Noem og Ravnsborg dómsmálaráðherra séu bæði repúblikanar er þeim ekki vel til vina. Noem þrýsti á Ravnsborg að segja af sér eftir að hann ók á mann sem var á gangi við hraðbraut og varð honum að bana í fyrra. Ríkisþing Suður-Dakóta ætlar að koma saman í nóvember til að ræða um hvort rétt sé að kæra Ravnsborg fyrir embættisbrot en hann hefur sjálfur þverneitað að segja af sér.

Corey Lewandowski, fyrrverandi kosningstjóri Trump. Hann var rekinn sem forsvarsmaður pólitísku aðgerðanefndarinnar Trump Make America Great Again eftir ásakanir um að hann hefði áreitt stuðningskonu nefndarinnar kynferðislega í gær.Vísir/EPA

Viðbjóðslegar lygar um framhjáhald með ráðgjafa Trump

Til að nudda salti í sár Noem birti íhaldssöm vefsíða ásakanir um að Noem ætti í leynilegu ástarsambandi við Lewandowski. Þau hafa verið í miklum samskiptum í tengslum við stjórnmálaviðburði en Lewandowski stýrði þar til í gær pólitiskri aðgerðanefnd fyrir Trump, að sögn Washington Post.

Noem lýsti þeim sögusögnum sem „algeru rusli og viðbjóðslegum lygum“ í tísti í gær. Sagðist hún unna eiginmanni sínum og stolt af guðhræddri fjölskyldu þeirra hjóna.

Lewandowski er sjálfur í kröppum dansi því kona sem hefur lagt aðgerðanefndinni til fé sakar hann um að hafa áreitt sig kynferðislega, þuklað á sér og misboðið með soratali á góðgerðaviðburði í Las Vegas í síðustu viku.

Talsmaður Trump sagði að Lewandowski stýrði aðgerðanefndinni ekki lengur í gærkvöldi. Honum hefði verið ýtt til hliðar.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Lewandowski er sakaður um ofbeldi gegn konu. Í kosningabaráttunni árið 2016 greip hann í blaðakonu Breitbart, hægrisinnaðs vefmiðils, og dró hana frá þegar hún ætlaði að spyrja Trump spurninga eftir blaðamannafund á Flórída. Trump rak Lewandowski en hann var þó fljótt kominn aftur í náðina hjá þáverandi forsetanum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×