Skoðun

Brauðbakstur ríkisins

Indriði Stefánsson skrifar

Þegar Laffer-kúrfan svokallaða var kynnt stimplaði hún sig vel inn meðal æðstupresta nýfrjálshyggjunnar. Hún réttlætti enda skattalækkanir fyrir tekjuháa; með skattalækkunum hefðu þeir ríku meira fé á milli handanna, þeir yrðu duglegri og kenningin var sú að auðurinn myndi að lokum leka niður allt þjóðfélagið og þannig skila sér til allra. Kenning sem við kennum við brauðmola í dag.

Það kom hins vegar á daginn að molarnir féllu ekki langt, döguðu oftast uppi á bankareikningum á hitabeltiseyjum og urðu því fáum til gagns. En kenningin er lífseig og er oft notuð af spunameisturum til að réttlæta skattalækkanir, þrátt fyrir að hafa aldrei virkað eins og spunameistararnir segja. Þvert á móti er tilfellið það sama og alltaf, brauðmolarnir skila sér mjög stutt.

Brauðbaksturskenningin

Hugmyndin að koma peningum inn í hagkerfið sem ganga mann af manni er samt góð, en ef peningarnir stoppa á bankareikningum gagnast þeir fáum. Skynsamlegasta leiðin til þess er því ekki að láta peningana leka niður hagkerfið - heldur að láta þá rísa upp hagkerfið. Í stað þessi að láta brauðmolana detta niður leyfum við brauðinu að hefast upp.

Það gerum við með því að lækka skatta á hin fátæku og láta þau hafa meira á milli handanna. Fátækt fólk felur ekki peninga sína í skúffu á Tortóla heldur nýtir þá til að bæta líf sitt og sinna nánustu, kaupir vörur og þjónustu sem svo keyrir atvinnulífið áfram. Það skilar sér svo auðvitað í ríkiskassann að lokum í formi annarra skatta og gjalda, þannig að beinn “kostnaður ríkisins” af skattalækkunum til fátækra er því minni en spunameistararnir reyna að telja þér trú um.

Að sama skapi er beinn kostnaður ríkisins af fátækt gríðarlegur, sem taka þarf með í reikninginn. Álagið sem fylgir því að strita í láglaunastarfi - jafnvel fleiri en einu - samhliða því að hafa stöðugar áhyggjur af afkomu sinni er ávísun á kulnun og kulnaður einstaklingur snýr svo sannarlega engum hjólum atvinnulífsins. Lélegt húsnæði er heilsuspillandi og heilsuveill einstaklingur hefur takmarkað svigrúm til að gefa af sér. Að lyfta fólki úr fátækt er nefnilega ekki bara sanngirnismál heldur jafnframt skynsöm stefna í heilbrigðis-, félags- og efnahagsmálum.

Réttlát stefna

Skattastefna Pírata er þess vegna svo einföld að henni má lýsa í tveimur orðum: Hún er framsækin (e. progressive) og græn. Það þýðir að litli maðurinn beri ekki byrðarnar og að við verðlaunum það sem er loftslagsvænt. Þannig lyftum við ekki aðeins fólki upp úr fátækt, sem er skynsamlegt að öllu leyti, heldur sjáum einnig til þess að öll geti tekið þátt í baráttunni við loftslagsbreytingar óháð efnahag. Það eru réttlátu umskiptin sem við þurfum.

Það hefur sennilega ekki farið framhjá neinum að það eru kosningar framundan. Kjósendur hafa marga valkosti, einn þeirra eru Píratar sem standa fyrir lýðræði, nýja stjórnarskrá, græna umbreytingu, alvöru varnir gegn spillingu, breytingar í sjávarútvegi, velsæld og ekkert kjaftæði. Kynntu þér endilega málið á piratar.is/kosningastefna

Höfundur er frambjóðandi Pírata til Alþingiskosninga 2021.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×