Golf

Óttaðist um líf sitt: Hélt ég myndi aldrei sjá konu mína og börn aftur

Valur Páll Eiríksson skrifar
Patrick Reed fagnaði sigri á Masters-mótinu árið 2018, og fékk þá hinn fræga græna jakka.
Patrick Reed fagnaði sigri á Masters-mótinu árið 2018, og fékk þá hinn fræga græna jakka. Vísir/Getty

Bandaríski kylfingurinn Patrick Reed segist hafa farið niður dimman dal er hann barðist fyrir lífi sínu vegna tvöfaldrar lungnabólgu í síðasta mánuði. Hann er mættur aftur á völlinn á Tour Championship-mótið sem stendur yfir.

Reed var í viðtali eftir fyrsta hringinn á Tour Championship, sem fer fram á East Lake-vellinum í Georgíuríki í Bandaríkjunum. Hann var óvænt mættur á mótið eftir að hafa nýlega fengið lungnabólgu í bæði lungu. Hann þurfti að vera á spítala í tæpa viku vegna þess þar sem hann segir hafa verið hræðilega reynslu, sérstaklega vegna kórónuveirufaraldursins.

„Vegna þess hvernig spítalar eru þessa dagana út af Covid, er fólki ekki hleypt þar inn, svo maður er einn þarna, segir Reed. Ég held ég hafi verið þarna í fimm eða sex daga, ég veit ekki nákvæmlega hve lengi. Ég man ekki nákvæman tímaramma sem ég var á spítalanum en manni leið eins og það væri heil eilífð.“ segir Reed.

Hann segir þá að læknar hafi sagt honum að hann væri í mjög slæmu ásigkomulagi. Þeir hvöttu hann til að vera í eins miklu sambandi við fjölskyldu sína og hann gat.

„Svo ég er fastur þarna og þessa fyrstu tvo daga er það eina sem ég hugsa að ég muni ekki geta kvatt börnin mín. Ég muni ekki geta sagt þeim að ég elski þau. Ég mun ekki geta sagt konunni minni að ég elski hana og knúsað hana.“ segir Reed.

„Þetta sendir mann klárlega á myrkan stað, sérstaklega þessa fyrstu tvo daga. En ég er svo ánægður að hafa haft svo gott teymi og ótrúlega lækna sem unnu með mér og hjálpuðu mér í gegnum þetta,“

Ergjandi að höggin séu ekki þau bestu en vill keppa á Ryder

Reed er nú mættur á Tour Championship-mótið sem er það síðasta á tímabilinu á PGA-mótaröðinni vestanhafs. Hann segist enn vera ryðgaður eftir veikindin og að hann sé aðeins mættur á mótið til að reyna að komast í Ryder Cup lið Bandaríkjanna.

„Það er dálítið ergjandi að geta ekki hitt skotin og virkilega finna ákveðna hluti ennþá, en ég tók hellings tíma í frí. Ég meina, ég var að berjast fyrir lífi mínu og það góða er að nú get ég komist aftur í fullt fjör, vonandi.“ segir Reed.

Ryder Cup fer fram 24.-26. september en þar mætast sveitir Bandaríkjanna og Evrópu í árlegri keppni. Á sunnudaginn, eftir að keppni á Tour Championship lýkur, mun Steve Stricker, fyrirliði Bandaríkjanna, velja sex leikmenn í bandaríska hópinn.

Þriðji hringur Tour Championship hefst klukkan 17:00 í dag og verður sýndur beint á Stöð 2 Golf.

Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×