Viðskipti innlent

Tekjur Ís­lendinga: Lítil hreyfing á lista fjöl­miðla­fólks þar sem RÚVarar mega vel við una

Eiður Þór Árnason skrifar
Kunnugleg andlit prýða listann nú líkt og síðustu ár.
Kunnugleg andlit prýða listann nú líkt og síðustu ár. Samsett

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, var tekjuhæsti fjölmiðlamaður landsins á síðasta ári samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar með 5,47 milljónir króna á mánuði að jafnaði. Hluti þeirra tekna eru eftirlaun frá tíma hans sem ráðherra, þingmaður og seðlabankastjóri.

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, fylgir á eftir Davíð með 3,87 milljónir króna í útsvarsskyldar tekjur. Starfsmenn Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, mbl.is og K100, eru fyrirferðamiklir í efstu sætum listans en í því þriðja og fjórða koma Haraldur Johannessen, annar ritstjóri Morgunblaðsins og framkvæmdastjóri Árvakurs, með 3,24 milljónir og Logi Bergmann Eiðsson, þáttastjórnandi á K100 og Sjónvarpi Símans, með 2,45 milljónir á mánuði.

Næstur er Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla Sýnar sem rekur meðal annars Stöð 2 og Vísi, með 2,17 milljónir en fast á hæla hans kemur Bogi Ágústsson, fréttamaður á RÚV, með 1,91 milljón króna á mánuði.

Lítil hreyfing hefur verið á toppi listans en í síðasta Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út árið 2019 fylltu sömu fjölmiðlamenn efstu fjögur sætin. Líkt og þá eru karlmenn nú mun fyrirferðameiri í fyrri hluta listans. 

Tólf með yfir milljón í Efstaleiti

Athygli vekur að tólf starfsmenn RÚV eru með yfir milljón á mánuði samkvæmt Tekjublaðinu en á eftir Boga kemur Broddi Broddason, varafréttastjóri RÚV, með 1,43 milljónir króna. Þá var Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri með 1,39 milljónir í mánaðartekjur í fyrra og Egill Helgason dagskrárgerðarmaður með 1,26 milljónir. 

Sigmar Guðmundsson, fyrrverandi dagskrárgerðarmaður, Baldvin Þór Bergsson, dagskrárstjóri nýmiðla og Rásar 2, Gísli Marteinn Baldursson dagskrárgerðarmaður, Þröstur Helgason, dagskrárstjóri Rásar 1, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, fréttamaður og formaður Blaðamannafélags Íslands, Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttamaður, Sigríður Hagalín Björnsdóttir varafréttastjóri og Anna Lilja Þórisdóttir fréttamaður voru með á bilinu 1,05 til 1,25 milljónir í áætlaðar mánaðartekjur í fyrra. 

Tekjuhæsta fjölmiðlafólkið í Tekjublaði Frjálsrar verslunar

  1. Davíð Oddsson, ritstj. Morgunblaðsins – 5.469 þúsund 
  2. Björn Ingi Hrafnsson, ritstj. Viljans – 3.868 þúsund 
  3. Haraldur Johannessen, framkvæmdastj. Árvakurs - 3.238 þúsund
  4. Logi Bergmann Eiðsson – fréttamaður hjá Árvakri – 2.446 þúsund
  5. Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastj. miðla Sýnar – 2.172 þúsund
  6. Bogi Ágústsson, fréttamaður á RÚV – 1.914 þúsund
  7. Jóhanna Helga Viðarsdóttir, fyrrv. framkvæmdastj. Torgs – 1.836 þúsund 
  8. Guðmundur Benediktsson, íþróttafréttamaður - 1.714 þúsund 
  9. Sölvi Tryggvason, fjölmiðlamaður – 1.503 þúsund 
  10. Kristjón Kormákur Guðjónsson, fyrrv. vefritstj. Fréttablaðsins – 1.474 þúsund 

Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í gær en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2020 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2019 sem var greiddur árið 2020.

Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.


Tengdar fréttir

Tekjur Íslendinga: Onlyfans-stjarna er tekjuhæsti áhrifavaldurinn

Samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar Verslunar sem kom út í dag þénaði Klara Sif Magnúsdóttir rúmlega eina milljón króna á mánuði árið 2020. Helsta tekjulind Klöru Sifjar er vefsíðan Onlyfans, en hún selur áskrifendum sínum aðgang að erótísku efni í gegnum síðuna.

Tekjur Ís­lendinga: Tekjur for­stjóra allt að 36 milljónir króna á mánuði

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels og Árni Harðarson, forstjóri Salt Investments raða sér í efstu sæti á lista Frjálsrar verslunar yfir tekjuhæstu forstjóra fyrirtækja í fyrra. Sá fyrrnefndi var að jafnaði með 35,94 milljónir króna í útsvarsskyldar tekjur á mánuði og nafni hans með góða 26,31 milljón í mánaðartekjur.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×