TILMÆLi! Sara E. Þórðardóttir Oskarsson skrifar 1. ágúst 2021 12:00 Fyrirvari: Eftirfarandi pistill lýsir á engan hátt skoðunum þess sem hann skrifar enda hefur höfundur ekki skoðanir heldur trúir á vísindin og okkar fremsta framlínufólk. Aukafyrirvari: Ég mæli alls ekki með því að þeir sem eru húmorslausir, eða hafa tilhneigingu til þess að taka lífinu háalvarlega lesi þennan pistil. Það er svakaleg áhætta að vera á lífi vegna þess að þá gæti maður dáið. Útlöndin eru svakalega hættuleg enda fullt af svakalega sýktum útlendingum þar. Þess vegna teljum við að það sé svakalega mikilvægt að halda sig bara heima á okkar ylhýra landi og loka sem mest og best á þessa svakalegu útlendu hættu alla. Spítalinn okkar Spítalinn okkar er á svakalegu hættustigi jafnvel þó að þar liggi einungis örfáir vegna covid. En það er engin furða og ekkert furðulegt við það, og vinsamlega ekki spyrja neinna spurninga út í það, af því að við viljum það ekki. Ef að þú starfar á spítalanum þá skaltu heldur ekkert vera að hnýsast um ástandið eða krefjast þóknunar í samræmi við vinnutíma og álag, heldur muna bara að þjóðin klappaði oft fyrir ykkur í vetur. Hérna eru nýjustu smittölurnar en ekki taka mark á þeim, þær segja ekkert og það gæti verið að þær fari svakalega hækkandi á næstu dögum. Hér eru svo upplýsingarnar um litakóðuðu sjúklingana. En það er óráðlegt að taka nokkuð einasta mark á þeim vegna þess að þær segir ekki alla söguna. Þær segja í raun alls enga sögu þannig að við ráðleggjum fólki að hugsa ekkert meira út í það. Strax Jafnvel þó að þú sért margbólusettur og marg-endursýktur og einkennalaus og alheilbrigður - og þó að þér líði stórvel og sért ungur og fílhraustur og hafir ekkert farið eða ekki hitt aðra hræðu síðustu tvo mánuðina þá skaltu ekki láta blekkjast! Það eru samt svakalega miklar líkur á að þú sért mikið sýktur og þú skalt flýta þér í sýnatöku strax! En mundu, jafnvel þó að niðurstaðan sé neikvæð og að þú greinist ekki með COVID-19 útilokar það alls ekki að þú fáir sjúkdóminn síðar eða sért kannski bara alveg að fara að fá hann. Farðu því aftur í sýnatöku strax svo að okkar frábæra og framúrskarandi smitrakningarteymi geti tekið þig úr umferð sem allra fyrst. En mundu: ekki vola - af því að þú ert alvöru Íslendingur auk þess sem að þú getur bara prísað þig sælan að fá að gista í einu af okkar 5 stjörnu farsóttarbælum. Partýið er þar. Einkennalaus Það er bandvitlaust að gera hjá okkur á göngdeildinni því að erum önnum kafin við að sinna sjúklingum sem eru einkennalausir og ekkert veikir. Og við höfum svakalega miklar áhyggjur af því að það séu kannski miklu fleiri þarna úti sem viti ekki að þeir séu ekki veikir og eru jafnvel í nánu samneyti við fullt af öðru heilbrigðu fólki - sem kemst svo kannski aldrei að það var ekkert veikt. Við höfum áhyggjur af því að það sé í raun rosalega margt heilbrigt fólk þarna úti sem lifir í góðri trú um að það sé heilbrigt og jafnvel hátti lífi sínu í samræmi við það. Við höfum eins og áður segir svakalega miklar áhyggjur af þessu.. Við höfum líka miklar áhyggjur af mun fleiru en við getum tjáð á klukkutímastuttum upplýsingafundum þannig að við munum halda auka upplýsingafund um síðasta upplýsingafundinn sem var áðan. Sá verður númer 2379 í röðinni. Ferðumst í huganum Við mælum með því að ferðast bara í huganum um Versló og alls ekki að fara neitt þar sem að þú gætir fundið annað fólk fyrir. Þetta á sér í lagi við um veislur, fjölskyldufagnaði, ýmiskonar mannamót og “djammið” svokallaða verandi auðvitað það alversta! Við mælum í raun ekki með því að fólk fari á neina opinbera staði yfir höfuð því að þar er öllum drullu sama. Ekki gera neitt að nauðsynjalausu og ef að þú ert í vafa um hvað teljist nauðsynlegt í þínu lífi og hvaða forgangsröðun þú átt að hafa þá tökum við það að okkur að skilgreina það fyrir þig. Ef að þú ert veikur af einhverju öðru en covid: ekki koma, ekki hringja, ekki! Og ef að þú þarft endilega að fæða barn þá væri betra að bíða aðeins með það. Sýnum tillitsemi, við erum langflest í þessu saman. Öndum í huganum Að lokum viljum við minna á að þeir sem anda eru mun útsettari fyrir því að smitast af covid þannig að við mælum með því að anda sem minnst - enda er það þekkt smitleið að smitast í gegnum öndunarfærin. Höfundur er hún sjálf. P.S. Veldisvöxtur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sara Oskarsson Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Ástþór Magnússon í spádómum? Gunnar Karl Halldórsson Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn Margrét Dagmar Ericsdóttir Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira