Fótbolti

Kyrr­látur Pick­­ford stór á­­stæða þess að Eng­lendingar eru bjart­sýnir

Jordan Pickford, landsliðsmarkvörður Englands, er eini markvörður Evrópumótsins sem hefur ekki enn fengið á sig mark í keppninni. Raunar er það þannig að Pickford hefur ekki fengið á sig mark í síðustu níu leikjum.

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Pickford í leiknum gegn Þýskalandi. EPA-EFE/Justin Tallis

Jordan Pickford, landsliðsmarkvörður Englands, er eini markvörður Evrópumótsins sem hefur ekki enn fengið á sig mark í keppninni. Raunar er það þannig að Pickford hefur ekki fengið á sig mark í síðustu níu leikjum.

Hinn 27 ára gamli Pickford er á sínu öðru stórmóti með Englandi og virðist mun þroskaðri í dag en á HM í Rússlandi sumarið 2018. Pickford hefur oft á tíðum litið út fyrir að vera frekar óþreyjufullur og almennt frekar einbeitingarlaus. 

Segja mætti að tónlistarsmekkur markvarðarins hafi gefið ágætis lýsingu á honum en Pickford elskar góða reiftónlist. Ástin er það mikil að hann lét setja setninguna „Get the rave on“ á skóna sína.

Í þessum skóm spilaði Pickford á sínum tíma.Enska knattspyrnusambandið

Pickford sagði hins vegar í viðtali nýverið að hann hefði verið að vinna með íþróttasálfræðingi í allan vetur og væri mun yfirvegaðri í dag heldur en áður. Það hefur heldur betur sést á frammistöðum hans með Englands.

Eftir að hafa haldið hreinu gegn Danmörku, Belgíu, Íslandi, Austurríki og Rúmeníu þá hefur hann einnig haldið hreinu gegn Króatíu, Skotlandi, Tékklandi og Króatíu á EM.

England er komið í 8-liða úrslit eftir að vinna riðilinn og leggja svo Þýskaland 2-0 í 16-liða úrslitum. Pickford spilaði sinn þátt en hann varði vel frá Timo Werner í fyrri hálfleik ásamt því að grípa vel inn í þegar þess þurfti.

Pickford varði vel frá Werner í sigri Englendinga á Þjóðverjum.EPA-EFE/Matt Childs

Stóð hann sig það vel í leiknum að Gary Neville, sparkspekingur Sky Sports og fyrrum landsliðsmaður Englands, valdi hann sem mann leiksins.

„Ég hef gagnrýnt hann hjá Everton en hann er allt annar leikmaður með Englandi,“ segir Neville á Twitter. 

Þá hefur David Seaman, fyrrum landsliðsmarkvörður Englands, hrósað kollega sínum í hástert.

„Ég hef verið mjög hrifinn. Hann er alltaf að verða betri og betri. Hann stóð sig vel í undankeppninni og hefur haldið því áfram. Pickford átti nokkrar stórar markvörslur í riðlakeppninni og 16-liða úrslitunum.“

„Ég nýt þess að horfa á hann spila og maður sér hvað sjálfstraustið hans hefur aukist. Ég tel hann þó ekki þurfa á meira sjálfstrausti að halda þar sem hann er mjög sjálfsöruggur maður,“ sagði Seaman í viðtali við Sky Sports.

Pickford átti glæsilega markvörslu í markalausu jafntefli Englands og Skotlands.EPA-EFE/Andy Rain

Pickford og enska landsliðið eiga góða möguleika á að fara tíu leiki án þess að fá á sig mark er England mætir Úkraínu í 8-liða úrslitum.



Tengdar fréttir

Segir þá ensku finna lykt af gulli

Margrét Lára Viðarsdóttir, spekingur Stöðvar 2 Sports, hrífst ekki af leikstíl enska landsliðsins í fótbolta en segir hann árangursríkan.

England kvað þýsku grýluna í kútinn og er komið áfram

England er komið í átta liða úrslit Evrópumótsins 2020 eftir að hafa slegið út Þýskaland 2-0 í 16-liða úrslitunum á Wembley í dag. Raheem Sterling og Harry Kane sáu um markaskorunina í síðari hálfleiknum.






×