Golf

Ljóst hverjir mætast í úrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni

Valur Páll Eiríksson skrifar
Guðrún Brá Björgvinsdóttir2

Undanúrslit á Íslandsmótinu í holukeppni kláruðust á Þorláksvelli í hádeginu og ljóst hverjir mætast í úrslitum í bæði karla- og kvennaflokki.

Í karlaflokki mættust Andri Már Óskarsson úr Golfklúbbi Selfoss og Lárus Ingi Antonsson úr Golfklúbbi Akureyrar í annarri undanúrslitaviðureigninni. Andri hafði lagt Aron Emil Gunnarsson í gær en Lárus hafði betur gegn Birgi Birni Magnússyni í 8-manna úrslitunum.

Viðureign þeirra Andra og Lárusar var spennandi þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á lokaholunni. Lárus Ingi hafði þar betur eftir að hafa unnið 16. holuna, báðir fóru á pari á síðustu holunum tveimur.

Lárus mun mæta Sverri Haraldssyni úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar í úrslitum en Sverrir lagði atvinnukylfinginn Andra Þór Björnsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur í undanúrslitunum. Sverrir komst þar þremur holum yfir og úrslitin ljós eftir 16. braut þar sem Andri gat ekki náð honum, 3&2.

Guðrún Brá og Eva Karen mætast kvennamegin

Í kvennaflokki munu atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili og Eva Karen Björnsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur mætast í úrslitum.

Guðrún Brá vann nokkuð öruggan 5&4 sigur á Huldu Clöru Gestsdóttur í undanúrslitunum þar sem sigur hennar var vís eftir skolla Huldu á 14. braut þar sem Guðrún fékk par.

Keppni Evu Karenar við Helgu Signýju Pálsdóttur, sem einnig er úr GR, stóð allt fram á lokaholuna. Eva var með einnar holu forystu fyrir þá síðustu en fékk þar fugl á meðan Helga fór á pari og vann Eva því með tveimur holum.

Úrslitaviðureignirnar fara fram síðar í dag og þá munu þau sem töpuðu í undanúrslitunum keppa um þriðja sæti í báðum flokkum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×