Heimsmarkmiðin

Öryggisráðið styður annað fimm ára tímabil Antonio Guterres

Heimsljós
UN/Mark Garten

António Guterres var meðal annars forsætisráðherra Portúgals, formaður Alþjóðasambands jafnaðarmanna og forstjóri Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR)

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt að leggja til að António Guterres skuli kosinn aðalframkvæmdastjóri samtakanna öðru sinni. Samkvæmt frétt Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna er það formlega allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem kýs til embættisins að fengnum ráðleggingum Öryggisráðsins. Guterres er einn í kjöri.

„Það hafa verið einstök forréttindi að vera í þjónusta aðildarríkjanna og veita því stórkostlega starfsliði, konum og körlum, sem þau hafa á að skipa undanfarin fjögur og hálft ár á meðan við höfum glímt við svo margslungnar áskoranir,“ sagði Guterres þegar samþykkt öryggisráðsins lá fyrir.

Flestir aðalframkvæmdastjórar hafa gegnt embætti í tvö kjörtímabil. Bandaríkin beittu þó neitunarvaldi til að hindra að Boutros Ghail gegndi áfram embætti 1996.

António Guterres var meðal annars forsætisráðherra Portúgals, formaður Alþjóðasambands jafnaðarmanna og forstjóri Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) áður en hann var kjörinn aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna til fimm ára, 1. janúar 2017. Hann er sjötíu og tveggja ára, fæddur 1949.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×