Hafa unnið leiki með 10,6 marka mun að meðaltali eftir að hafa marið Stjörnuna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júní 2021 12:45 Geir Guðmundsson og félagar í Haukum hafa verið óstöðvandi að undanförnu. vísir/hulda margrét Í fyrsta leik sínum í undanúrslitum úrslitakeppninnar í sögu félagsins mætir Stjarnan deildarmeisturum Hauka sem hafa unnið fjórtán leiki í röð. Stjarnan komst í fyrsta sinn upp úr átta liða úrslitum úrslitakeppninnar þegar liðið vann Selfoss, 28-30, á föstudaginn. Selfyssingar unnu fyrri leikinn, 24-26, en Stjörnumenn fóru áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. Haukar eru ekki árennilegir enda unnið fjórtán leiki í röð í deild og bikar, flesta með miklum mun. Í átta liða úrslitunum unnu Haukar Aftureldingu með samtals 24 marka mun. Stjarnan er síðasta liðið sem lét Hauka virkilega hafa fyrir hlutunum en Hafnfirðingar unnu leik liðanna í Olís-deildinni 16. mars, 26-25. Tandri Már Konráðsson og félagar í Stjörnunni fá verðugt verkefni gegn Haukum í kvöld.vísir/hulda margrét Stjörnumenn veittu Haukum mikla keppni þrátt fyrir að vera án Tandra Más Konráðssonar, Ólafs Bjarka Ragnarssonar og Sverris Eyjólfssonar. Leó Snær Pétursson var markahæstur Stjörnumanna í leiknum með sjö mörk en Ólafur Ægir Ólafsson skoraði sex mörk fyrir Hauka. Frá þessum leik hafa Haukar ekki unnið leik með minna en fjögurra marka mun. Það var gegn Val, 28-32. Eftir að hafa marið Stjörnuna 16. mars hafa Haukar unnið ellefu leiki í röð með samtals 116 marka mun, eða með 10,6 marka mun að meðaltali. Leikur Stjörnunnar og Hauka hefst klukkan 20:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Seinni bylgjan verður í TM-höllinni í Garðabæ og fjallað ítarlega um leikinn sem og leik ÍBV og Vals sem hefst klukkan 18:00. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Olís-deild karla Stjarnan Haukar Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Íslenski boltinn Herinn kallaður á æfingu á HM Fótbolti Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Fótbolti Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Íslenski boltinn Svisslendingar skoruðu fjögur mörk í lokin Fótbolti Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira
Stjarnan komst í fyrsta sinn upp úr átta liða úrslitum úrslitakeppninnar þegar liðið vann Selfoss, 28-30, á föstudaginn. Selfyssingar unnu fyrri leikinn, 24-26, en Stjörnumenn fóru áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. Haukar eru ekki árennilegir enda unnið fjórtán leiki í röð í deild og bikar, flesta með miklum mun. Í átta liða úrslitunum unnu Haukar Aftureldingu með samtals 24 marka mun. Stjarnan er síðasta liðið sem lét Hauka virkilega hafa fyrir hlutunum en Hafnfirðingar unnu leik liðanna í Olís-deildinni 16. mars, 26-25. Tandri Már Konráðsson og félagar í Stjörnunni fá verðugt verkefni gegn Haukum í kvöld.vísir/hulda margrét Stjörnumenn veittu Haukum mikla keppni þrátt fyrir að vera án Tandra Más Konráðssonar, Ólafs Bjarka Ragnarssonar og Sverris Eyjólfssonar. Leó Snær Pétursson var markahæstur Stjörnumanna í leiknum með sjö mörk en Ólafur Ægir Ólafsson skoraði sex mörk fyrir Hauka. Frá þessum leik hafa Haukar ekki unnið leik með minna en fjögurra marka mun. Það var gegn Val, 28-32. Eftir að hafa marið Stjörnuna 16. mars hafa Haukar unnið ellefu leiki í röð með samtals 116 marka mun, eða með 10,6 marka mun að meðaltali. Leikur Stjörnunnar og Hauka hefst klukkan 20:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Seinni bylgjan verður í TM-höllinni í Garðabæ og fjallað ítarlega um leikinn sem og leik ÍBV og Vals sem hefst klukkan 18:00. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olís-deild karla Stjarnan Haukar Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Íslenski boltinn Herinn kallaður á æfingu á HM Fótbolti Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Fótbolti Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Íslenski boltinn Svisslendingar skoruðu fjögur mörk í lokin Fótbolti Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira