Matur

Vanillu og karamellu „naked cake“ úr Blindum bakstri

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Eva Laufey bakaði vanillukökur skreyttar með blómum í Blindum bakstri í kvöld.
Eva Laufey bakaði vanillukökur skreyttar með blómum í Blindum bakstri í kvöld. Blindur bakstur

Í Blindum bakstri í kvöld bökuðu keppendur einstaklega fallegar vanillukökur með karamellukeim og karamellukremi. Útlitið var svokallað „naked cake“ þar sem kremið hylur ekki kökubotnanna algjörlega. 

Uppskrift þáttarins má finna hér fyrir neðan. Eva Laufey Kjaran mælir með því að fólk noti þrjú 20 cm form. 

Vanillukaka með karamellukeim og karamellukremi

Þrjú form 20cm

Botnar:

  • 170 g smjör, við stofuhita
  • 400 g sykur
  • 1 pakki saltkaramellu búðingur til dæmis frá Royal
  • 5 stk egg
  • 380 g hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • 1 tsk salt
  • 1 dl hrein ab mjólk frá
  • 1 dl mjólk
  • 2 tsk vanilludropar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C (blástur).
  2. Þeytið saman sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós.
  3. Bætið eggjum saman við, einu í einu og þeytið vel á milli.
  4. Sigtið þurrefnin saman og hrærið vel. Bætið Royal duftinu saman við og haldið áfram að þeyta.
  5. Hellið súrmjólkinni, mjólkinni og vanilludropum saman við og hrærið.
  6. Smyrjið þrjú form og setjið smjörpappír í botninn á þremur hringlaga formum.
  7. Skiptið deiginu jafnt í formin og bakið við 180°C í 20 – 22 mínútur.
  8. Best er að kæla botnana vel áður en þið setjið á þá krem.

Karamellukrem

  • 500 g flórsykur
  • 500 g smjör, við stofuhita
  • 1 tsk vanilludropar
  • 2 – 3 msk söltuð karamellusósa

Aðferð:

  1. Þeytið smjörið þar til það er létt og ljóst. Bætið flórsykrinum saman við í nokkrum skömmtum.
  2. Bætið vanilludropum og saltaðri karamellusósu út í og þeytið áfram, magnið af karamellusósunni fer eftir smekk.
  3. Setjið kremið á milli botnanna og þekjið kökuna með kreminu.
  4. Útbúið svokallað dripp og skreytið kökuna gjarnan með drippinu og ferskum blómum.

Dripp:

  • 120 ml rjómi
  • 120 g hvítt súkkulaði

Aðferð:

  1. Hitið rjómann að suðu.
  2. Saxið súkkulaði og hellið rjómanum saman við, leyfið þessu að standa óhreyfðu í 3 mínútur. Þá má hræra vel saman þar til sósan er silkimjúk. Ef þið ætlið að lita drippið þá er það gert á þessu stigi.
  3. Leyfið drippinu að standa svolítið en með því þykknar drippið og auðveldara að skreyta kökuna með því.

Tengdar fréttir

Gulrótarkakan úr Blindum bakstri

Sverrir Bergmann og Elísabet Ormslev kepptu í Blindum bakstri um helgina. Söngvararnir fylgdu Evu Laufey í blindni í baksturskeppninni og bökuðu þau gulrótarköku. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×