Matur

Gulrótarkakan úr Blindum bakstri

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Keppendur bökuðu gulrótarköku í Blindum bakstri á Stöð 2 á laugardag.
Keppendur bökuðu gulrótarköku í Blindum bakstri á Stöð 2 á laugardag. Blindur bakstur

Sverrir Bergmann og Elísabet Ormslev kepptu í Blindum bakstri um helgina. Söngvararnir fylgdu Evu Laufey í blindni í baksturskeppninni og bökuðu þau gulrótarköku. 

Uppskrift þáttarins má finna hér fyrir neðan. 

Gulrótarkaka

3 form x 20 cm

Botnar:

  • 4 egg
  • 5 dl púðursykur
  • 5 dl rifnar gulrætur
  • 3 dl kurlaður ananas (úr dós)
  • 5 dl hveiti
  • 2 tsk matarsódi
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1 tsk kanill
  • 3,25 dl bragðdauf matarolía

Aðferð:

  1. Forhitið ofninn í 180°C.
  2. Þeytið sykur og egg þar til blandan er orðin ljósbrún.
  3. Rífið niður gulrætur (mér finnst gott að gera það í matvinnsluvél) og setjið þær út í deigið ásamt og kurluðum ananas. Gott að geyma vökvann úr ananas dósinni.
  4. Bætið þurrefnum, vanillu og olíu saman við og þeytið þar til deigið hefur blandast vel saman. Það er alltaf gott að stoppa einu sinni til tvisvar, skafa meðfram hliðum og halda áfram að þeyta.
  5. Smyrjið tvö eða þrjú jafn stór hringlaga form og skiptið deiginu jafnt í formin (gott að nota vigt til þess að hafa þau nákvæmlega jafn stór).
  6. Bakið botnana við 180°C í 30 – 35 mínútur.
  7. Stingið kökuprjóni í kökuna eftir um það bil 25 mínútur, ef kakan er enn blaut þá þarf hún aðeins lengri tíma.
  8. Kælið botnana mjög vel áður en þið setjið á þá krem, best er að skreyta kökuna þegar botnarnir eru kaldir.
Eva Laufey var fyrst að afhjúpa sína köku í Blindum bakstri um helgina.Blindur bakstur

Rjómaostakrem

  • 300 g smjör, við stofuhita
  • 400 g hreinn rjómaostur, við stofuhita
  • 500 g flórsykur
  • 100 g hvítt súkkulaði
  • 2 tsk vanilludropar

Ofan á:

  • Saltkaramellusósa
  • 100 g ristaðar pekanhnetur

Aðferð:

  1. Þeytið smjör og rjómaost saman þar til blandan verður létt.
  2. Bræðið hvítt súkkulaði yfir vatnsbaði og leggið til hliðar.
  3. Bætið flórsykri og vanillu út í kremið og þeytið áfram. Hellið hvíta súkkulaðinu saman við og þeytið þar til kremið er silkimjúkt. Það gildir það sama með krem og deig, gott að stoppa einu sinni til tvisvar og skafa meðfram hliðum.
  4. Kremið er mjög mjúkt og stundum er ágætt að kæla það í 2 – 3 mínútur áður en þið skreytið kökubotnana, en þið smyrjið kreminu á milli botnana og þekjið svo kökuna með kreminu. Því næst kælið þið kökuna þar til kremið er alveg stíft og þá fer ljúffeng söltuð karamellusósa yfir ásamt ristuðum pekanhnetum.

Söltuð karamellusósa:

  • 3 dl sykur
  • 4 msk smjör
  • 1 – 2 dl rjómi
  • Sjávarsalt á hnífsoddi

Aðferð:

  1. Setjið sykurinn á pönnu og bræðið hann við vægan hita.
  2. Þegar sykurinn er allur bráðinn bætið þá smjörinu saman við og hrærið vel, hellið því næst rjómanum út í karamelluna og hrærið þar til karamellan er silkimjúk.
  3. Í lokin bætið þið saltinu saman við.

Tengdar fréttir

Oreo bomban úr Blindum bakstri

Þeir Jógvan og Friðrik Ómar mættu í baksturskeppninni Blindur bakstur á Stöð 2 um helgina.

Ráðherrakökurnar úr Blindum bakstri

Í þættinum Blindur bakstur um helgina kepptu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Bakaðar voru bollakökur með kremi og skrauti.

Afmæliskakan í Blindum bakstri

Í baksturskeppninni Blindur bakstur um helgina hjálpaði Eva Laufey keppendum að baka afmælisköku með silkimjúku smjörkremi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×