Tíska og hönnun

Stjörnurnar sem skinu skærast á rauða dreglinum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Margot Robbie
Margot Robbie Getty/Chris Pizzello

Óskarsverðlaunin voru afhent í 93. skipti í gær. Það voru margar stjörnur sem vöktu mikla athygli á rauða dreglinum og fengum við Ingunni Sig og Heiði Ósk okkar í HI beauty til þess að taka saman það sem stóð upp úr að þeirra mati.

Hér fyrir neðan má sjá það sem HI beauty þótti skara fram úr á rauða dregli Óskarsins í ár. Ingunn og Heiður eru á meðal eiganda Reykjavík Makeup School og  halda úti vinsælu hlaðvarpi og Instagram síðu og eru einnig með þættina Snyrtiborðið með HI beauty hér á Vísi.

Viola Davis

Kjóll: Alexander McQueen

„Hanakambur og cut out kjóll frá Alexander Mcqueen. Viola var aðeins meira edgy en við höfum áður séð hana og við vorum að fýla það. Hanakamburinn var ótrúlega flottur á henni.“

Viola DavisGetty

Maria Bakalova

Kjóll: Louis Vuitton

„Það fyrsta sem ég tók eftir á eftir kjólnum var þessi undone loose hárgreiðsla. Elska texturið og hvað það er effortless og fallegt. Rauður varalitur í sambland við fallega húð og fluffy brúnir. Mjög fallegt heildarlook.“

Maria BakalovaGetty

Chloe Zhao

Kjóll: Hermès

„Við sjáum hana mjög oft með fléttur í hárinu og fýlum að hún hafi haldið í það. Flétturnar eru líka að koma mjög heitar inn í sumar og það er skemmtilegt að sjá þær samtvinnast strigaskóm til að dressa þennan gordjöss kjól aðeins niður.“

Þessi mynd er reyndar ekki tekin á rauða dreglinum, en það var ekki hægt að birta mynd af leikstjóranum án flottustu fylgihlutanna, Óskarsverðlaunagripanna.Getty

Carey Mulligan

Kjóll: Valentino 

„Kjóllinn var móment útaf fyrir sig. Hárið skipt í miðju eins og hjá mörgum á rauða dreglinum í ár, mjög „loose“ tekið aftur.“

Carey MulliganGetty Images/ Chris Pizzello

Regina King

Kjóll: Louis Vuitton

„Mjög „powerful“ lúkk sem hún er að vinna með. Liturinn á kjólnum er algjör negla. Skartið fullkomlega parað við kjólinn. Dramatísk blá smokey augnförðun sem fer augnumgjörðinni hennar ótrúlega vel. Varaliturinn sem hún bar ætti að vera skírður í höfuðið á henni, hann fór henni svo vel.“

Regina KingGetty/Chris Pizzello

Zendaya

Kjóll: Valentino couture

„Wow wow wow“

ZendayaGetty/ Matt Petit

„Sítt hár með léttum beachy waves eins og við erum búnar að vera að sjá undanfarið Förðunin ótrúlega náttúruleg. Augabrúnirnar eru stjarnan í förðuninni, fallega mótaðar og náttúrulega greiddar upp.“

ZendayaGetty/ Chris Pizzell

H.E.R.

Samfestingur: Dundas

„Uppáhalds outfittið okkar. Geggjaður fjólublár samfestingur með hettu. Tía frá toppi til táar. Sólgleraugun, hárið öðru megin liðað, og baby hárin hennar fallega mótuð við hárlínuna. Fjólublá augnförðun, fullkomin. Negla!“

Hönnuðurinn Peter Dundas segir að innblásturinn hafi komið frá Prince, sem klæddist svipuðu dressi á Óskarsverðlaunin árið 1985. Í vikunni voru fimm ár frá dauða goðsagnarinnar og vildi H.E.R. heiðra hann með þessum hætti. 

H.E.R.Getty/ Matt Petit

Margot Robbie

Kjóll: Chanel

„New hair who dis?“

Margot RobbieGetty/Chris Pizzello

„Margot kom okkur á óvart með að rokka topp á rauða dreglinum. Erum að fá rosalega mikið boho vibe frá henni, laust tagl og fullt af volume. Erum að elska þetta, fer henni allt vel. Alltaf fallega förðuð, látlaust og fallegt“

Margot robbie.Getty

Tiara Thomas

Dragt: Jovana Louis

„Klikkað outfit. Hvít dragt með fjaðra details. Flott skartið við outfittið.“

Tiara ThomasGetty/ Matt Petit

Colman Domingo

Jakkaföt: Versace

„Skærbleikt suit, erum að elska þetta. Custom Versace outfit með 4.500 swarovski kristöllum Flottastur af körlunum.“

Colman DomingoGetty/ Matt Petit

Lakeith Stanfield

Jakkaföt: Saint Laurent

„70‘s inspired Saint Laurent suit, oldschool töff. Sólgleraugu og ljóst hár flott við lookið.“

Lakeith Stanfield fylgdist með Óskarnum frá viðburði í London.Getty/Alberto Pezzali

Við mælum með því að allir sem hafa áhuga á förðun, hári, snyrtivörum og tíski fylgi HI beauty á Instagram


Tengdar fréttir

Nomadland valin best á Óskars­verð­launum

Kvikmyndin Nomadland fékk flestar styttur á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fór í Los Angeles í nótt, eða þrjár talsins. Hún var valin besta myndin, Frances McDormand hreppti hnossið sem besta leikkona í aðalhlutverki og Chloé Zhao var valin besti leikstjórinn.

Stoltir Húsvíkingar sáu á eftir Óskarsverðlaunum

Húsvíkingar geta gengið sáttir frá borði þótt lagið Husavik úr Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga hafi ekki unnið verðlaun fyrir besta lagið á Óskarsverðlaunahátíðinni í kvöld. Lagið Fight for you úr kvikmyndinni Judas and the Black Messiah hlaut verðlaunin.

Vaktin: Heimurinn horfði á stúlknakór við Húsavíkurhöfn

Íslendingar hringdu inn Óskarsverðlaunin í ár þegar upphitun hátíðarinnar hófst með myndbandi frá Húsavík, þar sem sænska söngkonan Molly Sanden söng lag sitt Husavik - My Home Town með bakröddum úr heimabyggð, nefnilega stúlknakórnum úr fimmta bekk í Borgarhólsskóla.

Vaktin: Heimurinn horfði á stúlknakór við Húsavíkurhöfn

Íslendingar hringdu inn Óskarsverðlaunin í ár þegar upphitun hátíðarinnar hófst með myndbandi frá Húsavík, þar sem sænska söngkonan Molly Sanden söng lag sitt Husavik - My Home Town með bakröddum úr heimabyggð, nefnilega stúlknakórnum úr fimmta bekk í Borgarhólsskóla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×