Innlent

Opna aftur fyrir um­ferð að gos­stöðvunum á morgun

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Margir hafa lagt leið sína að eldgosinu í Geldingadölum á Reykjanesi undanfarna daga.
Margir hafa lagt leið sína að eldgosinu í Geldingadölum á Reykjanesi undanfarna daga. Vísir/Vilhelm

Ákveðið hefur verið að opna aftur fyrir umferð um Suðurstrandarveg að gosstöðvum í Geldingadölum frá hádegi á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum en gert er ráð fyrir að opnunin taki gildi klukkan tólf á morgun, páskadag.

Líkt og kunnugt er var ákveðið að loka fyrir umferð að gosstöðvunum í dag vegna veðurs. Rýming á svæðinu hófst um klukkan tíu í gærkvöldi og var lokið fyrir miðnætti.

„Vindátt fram að hádegi á morgun er okkur ekki hagstæð með tilliti til gasmengunar en mun verða betri um hádegi,“ segir í tilkynningunni.

„Veðurspá Veðurstofunnar gerir ráð fyrir norðan og norðaustan átt, frost 3 til 7 stig. Þeir sem hyggjast leggja leið sína að gosstöðvunum eftir hádegi á morgun ættu að huga vel að klæðnaði því að það verður kalt og vindkæling töluverð í ofanálag. Umferð sem nauðsynlega þarf að fara um Suðurstrandarveg mun geta farið fram hjá lokunum.“

Ráðlagt er fyrir þá sem hyggja á ferðalög um páskana að fylgjast vel með veðri og færð en gular viðvaranir eru til að mynda í gildi víða um land bæði í dag og á morgun. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×