Handbolti

Segir fram­tíð ís­lenska lands­liðsins bjarta en langaði að eiga mögu­leika á að komast á HM

Runólfur Trausti Þórhallsson og Svava Kristín Gretarsdóttir skrifa
Steinunn í leik með íslenska landsliðinu.
Steinunn í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Bára

Vísir ræddi við Steinunni Björnsdóttur, fyrirliða íslenska landsliðsins, um leikina mikilvægu gegn Slóveníu í apríl. Steinunn verður því miður ekki með eftir að hafa slitið krossband í Norður-Makedóníu þar sem Ísland tryggði sér á endanum leiki í umspili um sæti á HM 2021.

„Ég tel að landsliðið hafi tekið gríðarlega miklum framförum á síðustu mánuðum. Kannski erfitt að segja það því við höfum ekkert verið að æfa að viti út af Covid-19 en mér fannst þetta verkefni gefa mjög góðar vonir um næstu mánuði og ár. Það var góð stemning í hópnum og þrátt fyrir að tveir af þremur andstæðingum hafi ekki verið sérlega sterkir má ekki taka það af okkur að við spiluðum vel sem lið. Þau sem eru ekki inn á vellinum eða partur af hópnum sjá það ekki en það er gríðarlega mikil stemning í liðinu.“

„Við erum allar mjög bjartsýnar og jákvæðar yfir framhaldinu. Þess vegna finnst mér enn erfiðara að vera detta út, langaði að vera partur af því og eiga möguleika á að komast á HM 2021. Þannig ég er ofboðslega sorgmædd að vera missa af því,“ sagði Steinunn um íslenska liðið og meiðslin sem hún varð fyrir í tapinu gegn Norður-Makedóníu. Þar sleit hún krossband er hún lenti illa á stönginni eftir að hafa skorað mark úr hraðaupphlaupi.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum neðst í fréttinni.

Möguleikar Íslands

Ísland leikur tvo leiki við Slóveníu í apríl í umspili um sæti á HM sem fram fer í desember.

„Ég tel að við eigum mikla möguleika gegn þessu liði. Ef við erum með flesta okkar leikmenn heila og í góðu standi held ég að við eigum góða möguleika. Held það sé aðallega þessi trú sem er komin inn í landsliðið á eigin getu og eigin frammistöðu. Held að það muni hjálpa gríðarlega.“

„Ég veit að þetta lið er mjög sterkt og þær hafa verið á stórmótum undanfarin ár sem við höfum ekki verið svo augljóslega eru þær sterkari en við. Þær hafa samt sem áður ekki verið í toppsætunum svo þetta er skásti drátturinn sem var í boði og ég held að það gefi stelpunum byr undir báða vængi að vita að við eigum alveg séns og rúmlega það. Ég hlakka ótrúlega að fylgjast með þeim og sjá hvernig þessir leikir fara,“ sagði Steinunn um leikina tvo gegn Slóveníu.

Miklar breytingar

Arnar Pétursson gerði alls níu breytingar á íslenska hópnum sem tók þátt í undankeppni HM í Norður-Makedóníu og hópnum þar á undan.

„Það hafa verið miklar breytingar á liðinu undanfarin ár en mér fannst í þessu verkefni vera mjög mikill samhugur í hópnum. Þetta var auðvitað langur tími þar sem við vorum saman og allar ofboðslega spenntar að hittast og byrja aftur að spila fyrir hönd Íslands. Held það hafi verið rosalega mikill samhugur í hópnum. Ef ég tala út frá mér leið mér eins og þessi hópur hefði bara alltaf verið saman.“

„Veit að það er klisja að segja það en ég í raun og veru upplifði það. Held samt sem áður, af því við erum margar að spila heima og þekkjumst mjög vel – þó við séum ekki allar mjög góðar vinkonur – þá vitum við af hvor annarri og ég held að það spili stóran þátt í því að öllum hafi liðið vel og það hafi verið góð stemning.“

Anna Úrsúla og Karen Knútsdóttir verða með gegn Slóveníu

„Þessir tveir stólpar eru frábærir. Við vonuðumst til að Karen yrði með síðast en það var ekki hægt þar sem hún var nýbúin að eignast barn og það er fullkomlega skiljanlegt. Að fá Önnu Úrsúlu inn, þann karakter og reynslu sem hún býr yfir er frábær viðbót fyrir þennan hóp. Það eru margar þarna sem hafa spilað fáa landsleiki svo ég held það sé ótrúlega mikilvægt að fá hana inn og ég hef heyrt að hún býr til ákveðið sjálfstraust í leikmönnum. Að hafa hana nálægt sér og vita af henni þarna, það gefur að ég held liðinu ótrúlega mikið,“ sagði Steinunn Björnsdóttir að endingu.

Klippa: Steinunn um landsliðið

Tengdar fréttir

Búin að gráta mikið en get leitað í marga reynslubanka

„Ég er afskaplega sorgmædd yfir þessu,“ segir Steinunn Björnsdóttir, handboltakona ársins 2020. Allt bendir til þess að hún hafi slitið krossband í hné í leiknum gegn Norður-Makedóníu í Skopje síðasta föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×