Körfubolti

Doncic með þrennu í Texasslagnum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Luka Doncic og félagar í Dallas Mavericks hafa unnið fjóra leiki í röð.
Luka Doncic og félagar í Dallas Mavericks hafa unnið fjóra leiki í röð. getty/Tom Pennington

Keppni í NBA-deildinni í körfubolta hófst á ný í nótt eftir stjörnuleikshléið. Tveir leikir fóru þá fram.

Dallas Mavericks vann San Antonio Spurs, 115-104, í Texasslag. Kristaps Porzingis skoraði 28 stig og tók fjórtán fráköst fyrir Dallas sem hefur unnið fjóra leiki í röð.

Eins og svo oft áður var Luka Doncic með þrefalda tvennu hjá Dallas; 22 stig, tólf fráköst og tólf stoðsendingar.

DeMar DeRozan skoraði þrjátíu stig og gaf ellefu stoðsendingar fyrir San Antonio sem er í 7. sæti Vesturdeildarinnar, einu sæti á undan Dallas.

Memphis Grizzlies hélt stigahæsta leikmanni deildarinnar, Bradley Beal, í aðeins 21 stigi þegar liðið vann Washington Wizards, 127-112, á heimavelli. Beal hitti aðeins úr sex af 22 skotum sínum í leiknum.

Jonas Valanciunas var með tröllatvennu í liði Memphis; 29 stig og tuttugu fráköst. Ja Morant, nýliði ársins á síðasta tímabili, skoraði 21 stig og gaf tíu stoðsendingar.

Úrslitin í nótt

  • Dallas 115-104 San Antonio
  • Memphis 127-112 Washington

NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×