Viðskipti innlent

Ekki komið fleiri nýjar í­búðir á markaðinn frá árinu 2007

Eiður Þór Árnason skrifar
Mikið hefur verið byggt á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu.
Mikið hefur verið byggt á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu. Vísir/Vilhelm

Mun meira var byggt af nýju húsnæði á síðasta ári en bráðabirgðatölur og spár gerðu ráð fyrir. Tæplega fjögur þúsund fullbúnar íbúðir skiluðu sér á fasteignamarkaðinn í fyrra samkvæmt nýbirtum þjóðhagsreikningum Hagstofu Íslands sem er mesti fjöldi á stöku ári síðan 2007.

Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Landsbankans. Ólíklegt er að mikill skortur sé á húsnæði í ljósi þess að stærð húsnæðisstofnsins miðað við mannfjölda er nú nokkuð yfir meðallagi að sögn hagfræðideildar bankans.

„Uppbyggingin núna er áþekk því sem sást á árunum 2005-2008 og er það mat margra greiningaraðila að of mikið hafi verið fjárfest á þeim árum með þeim afleiðingum að offramboð myndaðist á árunum sem á eftir fylgdu. Að því sögðu verður að teljast ólíklegt að skortur sé verulega mikill á húsnæði um þessar mundir, m.a. í ljósi þess að hægt hefur á mannfjöldaaukningu vegna minni fjölgunar aðfluttra umfram brottflutta til landsins.“

Næst mesta uppbyggingarár frá árinu 2007

12% aukning var í íbúðafjárfestingu á fjórða ársfjórðungi 2020. Í nýútgefnum þjóðhagsreikningum voru eldri tölur endurskoðaðar og kom þá í ljós að samdrátturinn fyrr á árinu var minni en áður birtar tölur gáfu til kynna.

Það sem áður var talinn vera samdráttur upp á 7% milli ára á þriðja ársfjórðungi breyttist í 1% aukningu og 19% samdráttur á öðrum ársfjórðungi breyttist í 12% samdrátt. Svo virðist sem tímatafir í gagnaskilum opinberra aðila hafi þar haft áhrif að sögn hagfræðideildar Landsbankans.

Í október spáði bankinn því að 16% samdráttur hafi orðið í íbúðafjárfestingu á síðasta ári þegar vísbendingar voru uppi um að farið væri að hægja á íbúðauppyggingu.„Nú kemur í ljós að íbúðafjárfesting dróst aðeins saman um 1% milli ára og var því svipuð að umfangi og árið 2019 sem var mesta ár uppbyggingar síðan 2007.“

Þó tölur Hagstofunnar sýni að ekki hafi fleiri fullbúnar íbúðir skilað sér á markað á einu ári frá 2007 mælist samdráttur í fjölda íbúða sem eru á fyrri byggingastigum. Því gerir hagfræðideild Landsbankans ráð fyrir áframhaldandi sveiflum í fjölgun nýrra íbúða á næstu árum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×