Golf

Goðsögnin að berjast við það að ná niðurskurðinum í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Annika Sörenstam naut sín í endurkomunni í gær. Hún hefur oftast spilað betur en þetta var þó enginn skandall hjá henni.
Annika Sörenstam naut sín í endurkomunni í gær. Hún hefur oftast spilað betur en þetta var þó enginn skandall hjá henni. Getty/Cliff Hawkins

Golfgoðsögnin Annika Sörenstam er að spila á sínu fyrsta LPGA móti í tólf ár og þarf að spila betur í dag en í gær ef hún ætlar að ná niðurskurðinum.



Sænski kylfingurinn lék fyrsta hringinn á LPGA Gainbridge mótinu á þremur höggum yfir pari en hún er tíu höggum á eftir Lydia Ko sem hefur tveggja högga forystu. Sörenstam náði einum fugli en átti líka eina slæma holu þar sem hún

Annika Sörenstam er einn sigursælasti kylfingur sögunnar en þegar hún setti keppniskylfuna á hilluna árið 2008 þá hafði hún unnið 72 LPGA mót þar af tíu risamót.

Hún varð fimmtug í lok síðasta árs en ákvað að keppa aftur á LPGA móti þar sem að það fer fram á hennar heimavelli. Sörenstam ætlar sér síðan að taka þátt í öldungamótaröðinni á þessu ári.

„Ég hefði getað verið grimmari í púttunum og líka með járnkylfurnar. Ég á þeim stað í lífinu þar sem slíkt kemur ekki að sjálfu sér. Ég er meira að spila upp á að komast upp á flöt en að fara beint á pinnann. Þetta er líka aðeins meira stressandi en heilt yfir var þetta skemmtilegt,“ sagði Annika Sörenstam eftir hringinn.

Meðlimir í Lake Nona golfklúbbnum og fjölskyldugestir máttu vera á vellinum og það var mikill áhugi á spilamennsku Anniku Sörenstam því um 150 manns voru mætt á fyrsta teig.

„Ég var svolítið stressuð og hef verið stressuð síðustu daga,“ sagði Sörenstam og viðurkenndi að hún hafi þurft á hugleiðslu að halda um morguninn til að róa sig aðeins niður.

Annar hringurinn er í dag og það verður hægt að fylgjast með Sörenstam og öllum hinum í beinni á Stöð 2 Golf. Útsendingin frá öðrum degi LPGA Gainbridge mótsins hefst klukkan 14.30.

Annika Sörenstam er núna einu höggi frá því að ná niðurskurðinum á mótinu en hann er áætlaður tvö högg yfir par eftir fyrsta daginn. Sörenstam hóf leik í dag klukkan átta um morguninn að staðartíma eða fyrir klukkutíma síðan og það verður sýnt frá henni í útsendingu Stöð 2 Golf.


Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×