Handbolti

Snorri Steinn: Mark­varsla fyrri hálf­leiks mörgu leyti mér að kenna

Andri Már Eggertsson skrifar
Snorri Steinn hvetur sína menn til dáða. Óskar Bjarni, aðstoðarþjálfari, hans vinstri hönd.
Snorri Steinn hvetur sína menn til dáða. Óskar Bjarni, aðstoðarþjálfari, hans vinstri hönd. vísir/hulda margrét

Valur kom sér aftur á beinu brautina með sigri á Gróttu í fyrsta leik dagsins í áttundu umferð. Valur voru búnir að tapa síðustu tveimur leikjum og voru hungraðir í sigur. Fór það svo að þeir unnu tveggja marka sigur, 30-28, á Seltjarnarnesi í dag.

„Það er alltaf gaman að vinna, tilfinningin að vinna versnar aldrei og um það snérist leikurinn í dag við urðum bara að vinna einsog ég talaði um fyrir leik,” sagði Snorri ánægður og bætti við að hans menn vissu að þetta yrði ekki auðvelt.

Valur spilaði frábæra vörn í upphafi seinni hálfleiks sem gerði Gróttu erfitt fyrir sóknarlega og gerðu þeir sitt fyrsta mark í seinni hálfleik þegar tæplega 9:30 mínúta var liðin.

„Við byrjuðum leikinn í 5-1 vörn sem við erum óvanir en planið var alltaf að fara niður í 6-0 sem gekk og við þéttum raðirnar. Þó er ég smá pirraður að hafa hleypt þeim aftur inn í leikinn því við hefðum getað klárað þetta betur.”

Markvarsla Vals í fyrri hálfleik var lítil sem enginn. Báðir markmenn Vals fengu að spreyta sig í fyrri hálfleik og varði Einar Baldvin tvo bolta á meðan Martin Nagy varði engann.

„Ég tek það algjörlega á mig við vorum að prófa nýja hluti varnarlega sem bauð Gróttu upp á mikið af dauðafærum og því er ekki alveg hægt að skella skuldinni á markmennina tvo,” sagði Snorri um markvörslu fyrri hálfleiks.

Valur er með marga góða leikmenn á meiðsla listanum hjá sér og er Snorri ekki bjartsýnn á að endurheimta þá leikmenn strax fyrir næsta leik. Snorri telur að Agnar Smári verði fyrstur til að koma til baka úr meiðslum en enginn af þeim sem eru meiddir eru byrjaðir að æfa og er því erfitt að segja til um þá.

Alexander Júlíusson var í hlutverki línumanns lengi vel í leiknum sem er ekki hans aðal staða á vellinum.

„Við erum þunnskipaðir á línunni því Þorgils Jón er meiddur, það mæðir mikið á Alexander og Tjörva sérstaklega varnarlega og verðum við að rúlla því,” sagði Snorri og bætti við að Alexander er vanur að leysa hinar ýmsu stöður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×