Innlent

Úr­skurðaður í gæslu­varð­hald vegna rann­sóknar á inn­flutningi fíkni­efna

Eiður Þór Árnason skrifar
Úrskurðurinn féll í dag. 
Úrskurðurinn féll í dag.  Vísir/Vilhelm

Karlmaður um þrítugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald til 12. febrúar á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Farið var fram á gæsluvarðhaldsúrskurðinn í þágu rannsóknar lögreglunnar á innflutningi fíkniefna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem segist ekki geta veitt neinar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×