Markalaust hjá Úlfunum og Refunum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Lýsandi fyrir leik dagsins.
Lýsandi fyrir leik dagsins. EPA-EFE/Michael Regan

Wolverhampton Wanderers og Leicester City gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Wolves vann 2-1 sigur á Arsenal í síðustu umferð og komu því fullir sjálfstraust inn í leik dagsins gegn öflugu liði Leicester City. Leikurinn var stál í stál frá upphafi til enda og leit ekkert mark dagsins ljós en alls fóru fjögur gul spjöld á loft.

Leicester er því nú í 3. sæti með 43 stig en Wolves eru í 14. sæti með 27 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira