Handbolti

Aukakastið sem leiddi til vítisins umdeilda ranglega tekið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eins og sést steig Daði Jónsson á punktalínuna þegar hann tók aukakastið.
Eins og sést steig Daði Jónsson á punktalínuna þegar hann tók aukakastið. stöð 2 sport

Að sjálfsögðu var farið yfir vítakastið umdeilda sem var dæmt í blálokin á leik FH og KA í Olís-deild karla í Seinni bylgjunni í gær.

Eftir mikla reikistefnu dæmdu dómarar leiksins, þeir Gunnar Óli Gústafsson og Bjarki Bóasson, vítakast á FH þegar leiktíminn var runninn út. Andri Snær Stefánsson skoraði jöfnunarmark KA úr vítinu, 31-31.

Vítið var dæmt á Einar Rafn Eiðsson fyrir að verja skot Daða Jónssonar beint úr aukakasti. Vandamálið var að aukakastið var ekki tekið á réttum stað, fyrir utan punktalínuna.

„Sjáiði, hann stígur á línuna. Það þýðir ólöglega framkvæmt aukakast,“ sagði Henry Birgir Gunnarsson í Seinni bylgjunni.

„Með öðrum orðum, þeir gátu ekki dæmt víti þarna. Ef þeir hefðu fylgt öllu rétt hefðu þeir átt að láta endurtaka aukakastið.“

Klippa: Seinni bylgjan - Vítadómurinn umdeildi

Bjarni Fritzsyni fannst skrítið að Daði hefði náð að taka aukakastið jafn snöggt og hann gerði.

„Mér finnst sérstakt að hann nái að taka aukakastið strax því hann var teikaður. Ég set spurningarmerki við að það hefði ekki átt að vera tvær mínútur og stoppa tímann. Það hefði verið eðlilegur dómur og þá hefðu þeir fengið tvær sekúndur eða svo til að klára. En Daði reif sig upp og var klókur,“ sagði Bjarni og bætti við að viðbrögð FH-inga, að reyna að verja skot Daða, hafi verið ósjálfráð og eðlileg.

Henry Birgir sagði að þeir Gunnar Óli og Bjarki hafi dæmt leikinn afar vel í 59 mínútur, eða fyrir utan vítadóminn undir lokin.

„Það er ömurlegt að lenda í þessu í restina en við verðum að gefa þeim það að þeir stóðu sig mjög vel,“ sagði Henry Birgir.


Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.


Tengdar fréttir

Sigursteinn: Best að ég tjái mig sem minnst

Það er óhætt að segja að dramatíkin hafi verið allsráðandi í Kaplakrika þegar FH og KA gerðu 31-31 jafntefli í Olísdeild karla í handbolta. KA jafnaði metin úr vítakasti þegar leiktíminn var liðinn og voru FH-ingar æfir yfir þeim örlagaríka vítadómi. Sigursteinn Arndal er þjálfari FH og hann var augljóslega ekki sáttur eftir leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×