Birtir nafnlausar frásagnir íþróttakvenna til að fá sögurnar upp á yfirborðið Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 2. febrúar 2021 19:49 Margrét Björg Ástvaldsdóttir félagsfræðingur hefur safnað saman frásögnum íþróttakvenna og stúlkna. Margrét er þjálfari körfuboltaliðsins Aþenu og leikmaður Fylkis í úrvaldsdeild kvenna í knattspyrnu. aðsend „Það var grillveisla og liðið fer saman út á lífið ásamt þjálfara. Þjálfarinn króar okkur af út í horni og við förum að spjalla bara, allir hressir. Við spyrjum hann hvers vegna ein stúlka gefi ekki kost á sér í þetta skipti sem var mikilvægur hlekkur liðsins. Þjálfarinn lætur þetta út úr sér: „Ég skal segja ykkur það ef þið komið í sleik við mig.“ og „ég skal segja ykkur það ef þið komið með mér í threesome.“
Svo hefst frásögn körfuknattleikskonu þar sem hún lýsir aðstæðum sem hún og vinkona hennar lentu í, þá 18 ára gamlar og að stíga sín fyrstu skref með A-landsliði kvenna. Sagan er ein af fjölmörgum sögum íþróttakvenna og stúlkna sem félagsfræðingurinn og íþróttakonan Margrét Björg Ástvaldsdóttir hefur safnað saman og birt nafnlaust á heimasíðunni Síðasta sagan. „Ég safnaði sögunum árið 2020 og markmiðið með þessu er að koma þessum sögum upp á yfirborðið. Það var reynt að gera það á þann hátt að það væri með nafni en það var ekki hægt þannig ég fékk að safna þeim nafnlaust og þess vegna fékk ég þær fram,“ segir Margrét í samtali við Vísi. Henni hafi þótt rétti tímapunkturinn núna en í síðustu viku bárust til að mynda fréttir af því Leifi Garðarssyni yrði vikið frá dómgæslu eftir óeðlileg skilaboð til leikmanns í kvennaflokki. Þetta atvik er þó langt í frá að vera eina tilefnið að sögn Margrétar. „Í þessum sögum þá eru konur að lýsa upplifun sinni í íþróttum og þeim finnst þær einkennast af vanmætti og virðingarleysi. Markmiðið mitt með þessu er allan daginn að fá sögurnar upp á yfirborðið en ég vil samt leggja áherslu á aðgerðir. Ég vil ekki bara vera með vitundarvakningu, ég vil breytingar, ég vil styrkja konur, ég vil valdefla stelpur,“ segir Margrét. Segir Körfuknattleikssambandið þagga mál niður Aðspurð segir Margrét það gjarnan fara dálítið eftir íþróttagreinum hvers eðlis sögurnar eru. Sögurnar frá leikmönnum í körfubolta hafi sérstaklega komið henni á óvart. „Þá var ég að fá sögur þar sem ég kalla þemað „óviðeigandi samskipti,“ ég fékk langflestar sögur af því í körfuboltanum og það kom mér á óvart. Af því að KKÍ gefur sig út fyrir það að hafa ekki fengið nein svona mál upp á borð hjá sér en það er ekki satt. Þau láta það bara alltaf undir borðið,“ segir Margrét. Að því er fram kemur í sögunni sem vitnað var til hér í upphafi missti landsliðsþjálfarinn sem um ræðir starfið en það sagt vera vegna trúnaðarbrests. Hann hafi þá farið að þjálfa annað félagslið kvenna og starfi enn í virtu starfi hjá KKÍ. „Eftir atvikið erum við kallaðar á fund upp í KKÍ. Þau segjast standa með okkur en þagga niður málið og sópa því undir borð,“ segir í sögunni. „Annars eru þetta rosalega mismunandi frásagnir. Þetta er allt frá einhverjum samskiptum sem stelpur eru ósáttar við, kynferðislegum, eða upp í aðstöðumun og hvað sem þær vilja fjalla um. Ég er að gefa þessum íþróttakonum röddina til að segja frá sögunum en fókusinn er alltaf; ég vil aðgerðir, ég vil styrkja stelpur og konur,“ segir Margrét. Leggur áherslu á aðgerðir og valdeflingu stúlkna Margrét kveðst binda vonir við að íþróttafélög marki sér betri stefnu í sínu starfi þar sem lögð sé áhersla á valdeflingu kvenna og stúlkna. Sjálf spilar Margrét með Fylki í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu og þjálfar stelpur í körfuboltaliðinu Aþenu, nýju íþróttafélagi sem var stofnað árið 2019. „Þar er unnið markvisst að því að valdefla stelpur,“ segir Margrét. „Eins og þú heyrir af þessum sögum þá finna stelpur fyrir einhverjum vanmætti, virðingarleysi en með því að styrkja stelpur þá munu þær vera sterkari í samskiptum og þær munu ráða betur við þetta,“ segir Margrét. „Ég held að stelpur og konur þær bregðast mismunandi við. Í sumum tilfellum segja þær ekki neitt og gera ekki neitt í þessu sem þær eru ósáttar við einhver samskipti eða hvað sem það er. En það á allan daginn að styrkja stelpur í því að breyta hlutunum, að vera breytingin, og bregðast við á þann hátt til dæmis að segja frá. Ef þær vilja gera það.“ Hefurðu ábendingu sem tengist fréttinni? Vísir tekur við ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Körfubolti Jafnréttismál Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira