Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Kvöldfréttir hefjast á samtengdum rásum Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis á slaginu 18:30.
Kvöldfréttir hefjast á samtengdum rásum Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis á slaginu 18:30. Vísir

Ráðherrar í ríkisstjórn fordæma skotárás á bíl borgarstjóra og flokkar á þingi vilja fund með ríkislögreglustjóra. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum okkar klukkan 18:30.

Þá segjum við frá því að heilbrigðisráðherra og sóttvarnalæknir skoða hvort tímabært sé að draga úr sóttvarnaaðgerðum vegna kórónuveirunnar.

Við fjöllum líka um að harka sé að færast í deilu Kínverja og Tævana. Stjórnmálafræðingur segir Kínverja vera að kanna viðbrögð nýs Bandaríkjaforseta.

Gengið hefur verið frá samningi um að tvö þúsund þúsund leghálssýni íslenskra kvenna verði rannsökuð á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn en við förum yfir málið í fréttatímanum.

Þá hittum við senegalskar systur sem eru himinlifandi með að lagt hafi verið til að þær fái íslenskan ríkisborgararétt.

Kvöldfréttirnar eru nú í lokaðri dagskrá en áskrifendur geta horft á þær hér á stod2.is. Einnig er hægt að hlusta á fréttirnar á Bylgjunni hér í spilaranum fyrir ofan.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×