Samfélagið á Flateyri slegið Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 20. janúar 2021 14:01 Frá Flateyri þar sem fjölskyldan er búsett. Visir/Egill Rannsókn lögreglu á tildrögum banaslyssins í Skötufirði gengur vel en er ekki lokið samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vestfjörðum. Bænastund verður haldin í Flateyrarkirkju í kvöld. Sóknarpresturinn segir slysið hafa mikil áhrif á samfélagið.
Drengurinn sem var í bifreiðinni sem fór út af veginum í Skötufirði og hafnaði í sjónum á laugardagsmorguninn lést í gær á Landspítala Háskólasjúkrahúsi Nafn drengsins er Mikolaj Majewski og var hann á öðru ári. Tomasz Majewski faðir hans lenti einnig í slysinu og er líðan hans eftir atvikum góð samkvæmt lögreglunni á Vestfjörðum. Eftirlifandi hálf systir Mikolaj er , Wiktoria Majowska 12 ára, sem er búsett hér á landi ásamt móður sinni og fósturföður. Móðir drengsins Kamila Majewska, lést á laugardagskvöld. Von er á fjölskyldu Tomaszar og Kamilu frá Póllandi á föstudag. Samkvæmt upplýsingum frá aðstandanda er gert ráð fyrir að útför Kamilu og Mikolaj verði í Póllandi. Rannsókn á tildrögum slyssins miðar vel samkvæmt upplýsingum frá lögreglu en ekki er hægt að segja frá niðurstöðu hennar að svo stöddu. Fjölnir Ásbjörnsson sóknarprestur í Flateyrarkirkju. Vísir(Friðrik Lögreglan sendir eftirlifandi eiginmanni og föður sýnar innilegustu samúðarkveðjur. Þá vill lögreglan ítreka þakkir til viðbragðsaðila sem komu á vettvang og ekki síður þeirra fjögurra vegfarenda sem fyrstir komu að og veittu fyrstu hjálp. Þá óskar Pólska sendiráðið á Íslandi aðstendum dýpstu samúðarkveðjur. Bænastund verður haldin í Flateyrarkirkju í kvöld. Fjölnir Ásbjörnsson er sóknarprestur í Flateyrarkirkju. „Það var bænastund einmitt á sunnudaginn var þar sem við opnuðum kirkjuna. Það tókst ákaflega vel og í kvöld ætlum við að opna kirkjunna klukkan frá 20-22. Fólk getur þá komið, kveikt á kertum, spjallað saman eða rætt við prest,“ segir Fjölnir. Hann segir samfélagið slegið. „Samfélagið er mjög náið á Flateyri, það þekkjast allir mjög vel og þetta hefur mikil áhrif vítt og breitt í samfélaginu. Fólk villl leggja sitt af mörkum til að aðstoða fjölskylduna,“ segir Fjölnir. Stofnaður hefur verið söfnunareikningur fyrir Tomasz Majewski sem lenti í slysinu. Söfnunarfénu verður varið til að standa straum af útfararkostnaði, stuðningi við fjölskylduna og ferðum milli Íslands og Póllands. Reikningsnúmer er:0123-15-021551, kt: 031289-4089.
Banaslys í Skötufirði Ísafjarðarbær Samgönguslys Tengdar fréttir Líðan mannsins eftir atvikum góð Líðan mannsins sem lifði af bílslysið í Skötufirði á laugardag er eftir atvikum góð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum. 20. janúar 2021 11:19 Erfiðast að sjá fólk hrapa Fjallgöngumaðurinn John Snorri Sigurjónsson stefnir á að standa á toppnum á K2 áður en mánuðurinn er á enda. Hópurinn býr sig nú undir aftakaveður sem spáð er á morgun og bíður átekta á meðan það gengur yfir. Tveir hafa týnt lífi á fjallinu undanfarna daga. 19. janúar 2021 19:01 Litli drengurinn látinn eftir slysið í Skötufirði Drengur sem lenti í umferðarslysi ásamt foreldrum sínum í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á laugardag er látinn. 19. janúar 2021 18:39 Safna fyrir fjölskyldu konunnar sem lést í Skötufirði Söfnun hefur verið hrundið af stað fyrir fjölskyldu Kamilu Majewsku, pólskrar konu búsett á Flateyri, sem lést eftir umferðarslys í Skötufirði á laugardagsmorgun. Pólskir vinir konunnar standa að söfnuninni og segja hana til styrktar eiginmanni hennar og sonar sem sé í lífshættu. 19. janúar 2021 11:50 Ráðast í endurbætur á símasambandi á slysstað í næstu viku Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir það sjaldgæft að fólk nái ekki sambandi í neyð vegna slæms símasambands og að þeim stöðum fari mjög fækkandi. Til stendur að ráðast í endurbætur á símasambandi í Skötufirði í næstu viku þar sem banaslys átti sér stað á laugardag. 18. janúar 2021 20:46 „Menn verða að geta komist í síma ef slys ber að höndum“ Varðstjóri á Ísafirði segir að innan samfélagsins fyrir vestan fari nú fram hávær umræða um slæmt ástand innviða í Ísafjarðardjúpi í skugga banaslyssins á laugardag. 18. janúar 2021 13:37 Viðbragðsaðilar lausir úr sóttkví Viðbragðsaðilar sem tóku þátt í björgunaraðgerðum vegna umferðarslyssins sem varð í Skötufirði í gær eru lausir úr úrvinnslusóttkví. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum. 17. janúar 2021 14:18 Vegfarendur náðu konu og barni úr bílnum Neyðarlínu barst tilkynning um slysið í Skötufirði 16 mínútur yfir tíu í morgun. Vegfarendur höfðu komið að bíl fjölskyldunnar úti í sjó en þurftu að fara af slysstað til þess að hringja í Neyðarlínuna. 16. janúar 2021 18:30 Fólk sem aðstoðaði við björgunina í úrvinnslusóttkví Fólkið sem kom að beinni björgun eftir að bíll fór í sjóinn í Skötufirði er nú í úrvinnslusóttkví. Þetta staðfestir Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, í samtali við fréttastofu. 16. janúar 2021 14:16 Fjölskylda flutt með þyrlu til Reykjavíkur eftir slysið Þau þrjú sem voru í bílnum sem fór í sjóinn í Skötufirði voru flutt á sjúkrahús í Reykjavík með þyrlum Landhelgisgæslunnar nú eftir hádegi. Komið var með fólkið á Borgarspítalann á öðrum tímanum. 16. janúar 2021 13:05 Vegfarendur náðu fólki úr bíl sem fór í sjóinn í Skötufirði Viðbragðsaðilar voru kallaðir út vegna slyss í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á Vestfjörðum vegna tilkynningar um bíl sem fór í sjóinn á ellefta tímanum í morgun. Þrír voru í bílnum. 16. janúar 2021 11:06 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Heimamanna bíður það verkefni að finna nafn á nýja lónið sem er komið til að vera Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Hítará hefur fundið sér nýjan farveg Innlent Veiðileyfasali fékk engar bætur dæmdar fyrir þjófnað í Kjarrá Innlent Sigurþór ráðinn framkvæmdastjóri SVFR Innlent Dularfulla minkagildruhvarfið Innlent Allt eftirlit hert vegna veiðiþjófa við Elliðaár Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira
Líðan mannsins eftir atvikum góð Líðan mannsins sem lifði af bílslysið í Skötufirði á laugardag er eftir atvikum góð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum. 20. janúar 2021 11:19
Erfiðast að sjá fólk hrapa Fjallgöngumaðurinn John Snorri Sigurjónsson stefnir á að standa á toppnum á K2 áður en mánuðurinn er á enda. Hópurinn býr sig nú undir aftakaveður sem spáð er á morgun og bíður átekta á meðan það gengur yfir. Tveir hafa týnt lífi á fjallinu undanfarna daga. 19. janúar 2021 19:01
Litli drengurinn látinn eftir slysið í Skötufirði Drengur sem lenti í umferðarslysi ásamt foreldrum sínum í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á laugardag er látinn. 19. janúar 2021 18:39
Safna fyrir fjölskyldu konunnar sem lést í Skötufirði Söfnun hefur verið hrundið af stað fyrir fjölskyldu Kamilu Majewsku, pólskrar konu búsett á Flateyri, sem lést eftir umferðarslys í Skötufirði á laugardagsmorgun. Pólskir vinir konunnar standa að söfnuninni og segja hana til styrktar eiginmanni hennar og sonar sem sé í lífshættu. 19. janúar 2021 11:50
Ráðast í endurbætur á símasambandi á slysstað í næstu viku Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir það sjaldgæft að fólk nái ekki sambandi í neyð vegna slæms símasambands og að þeim stöðum fari mjög fækkandi. Til stendur að ráðast í endurbætur á símasambandi í Skötufirði í næstu viku þar sem banaslys átti sér stað á laugardag. 18. janúar 2021 20:46
„Menn verða að geta komist í síma ef slys ber að höndum“ Varðstjóri á Ísafirði segir að innan samfélagsins fyrir vestan fari nú fram hávær umræða um slæmt ástand innviða í Ísafjarðardjúpi í skugga banaslyssins á laugardag. 18. janúar 2021 13:37
Viðbragðsaðilar lausir úr sóttkví Viðbragðsaðilar sem tóku þátt í björgunaraðgerðum vegna umferðarslyssins sem varð í Skötufirði í gær eru lausir úr úrvinnslusóttkví. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum. 17. janúar 2021 14:18
Vegfarendur náðu konu og barni úr bílnum Neyðarlínu barst tilkynning um slysið í Skötufirði 16 mínútur yfir tíu í morgun. Vegfarendur höfðu komið að bíl fjölskyldunnar úti í sjó en þurftu að fara af slysstað til þess að hringja í Neyðarlínuna. 16. janúar 2021 18:30
Fólk sem aðstoðaði við björgunina í úrvinnslusóttkví Fólkið sem kom að beinni björgun eftir að bíll fór í sjóinn í Skötufirði er nú í úrvinnslusóttkví. Þetta staðfestir Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, í samtali við fréttastofu. 16. janúar 2021 14:16
Fjölskylda flutt með þyrlu til Reykjavíkur eftir slysið Þau þrjú sem voru í bílnum sem fór í sjóinn í Skötufirði voru flutt á sjúkrahús í Reykjavík með þyrlum Landhelgisgæslunnar nú eftir hádegi. Komið var með fólkið á Borgarspítalann á öðrum tímanum. 16. janúar 2021 13:05
Vegfarendur náðu fólki úr bíl sem fór í sjóinn í Skötufirði Viðbragðsaðilar voru kallaðir út vegna slyss í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á Vestfjörðum vegna tilkynningar um bíl sem fór í sjóinn á ellefta tímanum í morgun. Þrír voru í bílnum. 16. janúar 2021 11:06