Körfubolti

Logi Gunnars fékk fiskikar við hliðina á heita pottinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi Gunnarsson er áfram í mikilvægu leiðtogahlutverki hjá Njarðvíkurliðinu.
Logi Gunnarsson er áfram í mikilvægu leiðtogahlutverki hjá Njarðvíkurliðinu. Vísir/Bára

Það verður væntanlega mikið um „heitt og kalt“ hjá aldursforseta Njarðvíkurliðsins á þeim krefjandi vikum sem eru framundan í körfuboltanum.

Logi Gunnarsson ætlar að mæta klár í slaginn þegar Domino´s deild karla í körfubolta hefst á nýjan leik eftir langt COVID-hlé.

Logi er ennþá tilbúinn að fórna skrokknum í átökin á parketinu en hann verður fertugur í haust.

Það er samt ljóst að það gæti verið mun erfiðara fyrir eldri leikmenn að komast í gegnum þetta langa hlé ekki síst þar sem við tekur mjög stíft leikjaálag á næstu vikum.

Njarðvíkingar vilja passa upp á sinn mann og það nýjasta í þeim efnum er að sjá til þess að fyrirliðinn geti kælt sig almennilega niður á milli leikja.

Gunnar Örlygsson mætti því með fiskikar heim til Loga í gær en karið fær fyrirliðinn lánað frá fyrirtækinu AG Seafood.

„Logi Gunnarsson þarf að kæla sig niður milli leikja til að koma líkamanum í stand og því kom Gunni færandi hendi með fiskikar sem verður vel nýtt á milli stríða. Logi er sjálfur með heita pott heima hjá sér þannig við vonum að hann skutlist i hann eftir karið því við verðum að hafa hann heitan inn á vellinum,“ sagði í þessari skemmtilegu frétt á samfélagsmiðlum Njarðvíkinga.

Gunnar Örlygsson og AG Seafood gera allt til að hjálpa til en aldursforsetinn okkar Logi Gunnarsson þarf að kæla sig...

Posted by Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur on Mánudagur, 11. janúar 2021

Logi Gunnarsson er kominn upp í sjöunda sætið yfir leikjahæstu leikmenn Njarðvíkur í efstu deild með 235 leiki og ætti að ná sjötta sætinu í vetur. Hann er líka fjórði stighæsti leikmaður Njarðvíkur frá upphafi.

Þessu hefur Logi náð þrátt fyrir að spila í tíu tímabil sem atvinnumaður erlendis. Þegar hann mætir í fyrsta leik með Njarðvík á fimmtudagskvöldið þá verða liðin meira en 23 ár og þrír mánuðir síðan að hann spilaði sinn fyrsta leik í úrvalsdeild með Njarðvík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×