Frjáls verslun velur Andra Má mann ársins í íslensku viðskiptalífi 20. desember 2007 17:18 MYND/GVA
Tímaritið frjáls verslun hefur valið Andra Má Ingólfsson, forstjóra og eigandi Primera Travel Group, mann ársins í íslensku atvinnulífi árið 2007. Í tilkynningu frá tímaritinu segir að dómnefnd hafi valið hann vegna framúrskarandi árangurs hans við að stækka fyrirtækið, athafnasemi og djarflega framgöngu við yfirtökur á erlendum ferðaskrifstofum sem gert hafa fyrirtækið að þriðju stærstu ferðaskrifstofu á Norðurlöndunum. „Andri Már er eini eigandi Primera Travel Group. Hann stofnaði Heimsferðir árið 1992 og flutti það ár um 1 þúsund farþega. Á þessu ári flytja tólf fyrirtæki í eigu Andra í sjö löndum yfir 1 milljón farþega til um 50 staða í heiminum, mest í beinu leiguflugi. Andri er með yfir 1.500 manns í vinnu. Velta Primera Travel Group verður um 60 milljarðar króna á þessu ári og hagnaður fyrir skatta tæpir 3 milljarðar króna," segir í tilkynningu Frjálsrar verslunar. Andri á 80 prósent í flugfélaginu Jetx - Primera Air en það félag á fimm þotur, en verður með níu þotur á næsta ári, þar af tvær breiðþotur sem flytja munu farþega til fjarlægra áfangastaða. Þá á Andri fyrirtækið Heimshótel sem keypti gamla Eimskipafélagshúsið og breytti því í glæsilegt hótel. Þar er núna Hótel Radisson SAS 1919. Andri á húsnæðið en annast ekki reksturinn. Verðlaunin verða afhent formlega í veislu sem Frjáls verslun heldur Andra til heiðurs í Súlnasal Hótel Sögu föstudaginn 28. desember nk.
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira