Enn þegir siðanefnd - ógagnsæið algjört Ragnhildur Sverrisdóttir skrifar 28. apríl 2011 06:15 Blaðamenn ganga í kvöld til aðalfundar félags síns, Blaðamannafélags Íslands. Af því tilefni vil ég varpa fram nokkrum atriðum til umhugsunar, sem öll varða siðanefnd félagsins. Hinn 4. febrúar sl. ritaði ég opið bréf til BÍ þar sem ég óskaði svara um vinnubrögð siðanefndar. Ég hafði kært umfjöllun í fjölmiðli til nefndarinnar, fyrir hönd þess sem taldi á sér brotið. Í framhaldinu var ég sannfærð um að ég yrði kölluð fyrir nefndina, líkt og skýrt er tekið fram í siðareglum hennar. Aldrei kom það kall. Ég var líka sannfærð um að nefndarmaður, sem hafði fjallað margoft m.a. á eigin bloggsíðu um meint svik og pretti kæranda – og síðar var allt hrakið – myndi sjá sóma sinn í að víkja sæti. Það gerðist ekki. En fyrst og fremst var ég sannfærð um að málsmeðferð öll yrði gagnsæ. Ekki hvarflaði annað að mér en að ég myndi hafa aðgang að svörum hins kærða fjölmiðils, rétt eins og sá fjölmiðill hafði aðgang að öllum atriðum kærunnar. Þetta reyndist hins vegar rangt. Þrátt fyrir ítrekaðar óskir hef ég ekki fengið neinar upplýsingar um á hvaða gögnum frá hinum kærða fjölmiðli siðanefnd Blaðamannafélagsins byggði úrskurð sinn. Í kjölfar opna bréfsins, sem birtist í Fréttablaðinu, fékk ég svar frá stjórn Blaðamannafélagsins hinn 26. febrúar sl. Í svarinu, sem undirritað var af Hjálmari Jónssyni formanni, fyrir hönd stjórnar, kemur fram að siðanefnd sé kjörin á aðalfundi, hún starfi sjálfstætt og lúti ekki boðvaldi stjórnar með einum eða öðrum hætti. Í svarinu segir: „Enginn vafi er á að nefndin sinnir starfi sínu af kostgæfni og fagmennsku í hvívetna. Teljir þú að eitthvað megi betur fara í starfi, starfsreglum eða siðareglum félagsins er aðalfundur félagsins eðlilegasti vettvangurinn til þess að koma þeim athugasemdum á framfæri." "Það tíðkast ekki…“Þar sem lögð var áhersla á sjálfstæði siðanefndar í svarinu óskaði ég eftir að siðanefndin tæki sjálf afstöðu til þeirra efnisatriða, sem fram komu í grein minni. Mér fannst það á allan hátt eðlilegra en að benda þeim, sem athugasemdir hafa við störf nefndarinnar, á að mæta á aðalfund félagsins. Í tölvupósti til siðanefndar 28. febrúar sl. ítrekaði ég því spurningar mínar um málsmeðferðina, um leið og ég spurði siðanefndina sjálfa hvort hún teldi ekki mikilvægt að vinnubrögð hennar og ákvarðanir uppfylltu kröfur um gagnsæi og opna starfshætti. Mánuði síðar, 28. mars, ítrekaði ég erindið til siðanefndar, enda þótti mér þögnin orðin ærandi. Ég fékk svar degi síðar, frá formanni BÍ fyrir hönd siðanefndar og þótti mér þá fara lítið fyrir algjöru sjálfstæði nefndarinnar. Formaðurinn skrifaði að hann hefði verið beðinn að koma eftirfarandi á framfæri: „Það tíðkast ekki hjá þessari siðanefnd frekar en fyrri siðanefndum að svara spurningum er lúta að úrskurðum nefndarinnar, enda eru þeir endanlegir samkvæmt siðareglum BÍ." Sama dag, 29. mars, sendi ég svarbréf og ítrekaði að spurningar mínar lytu í engu að efnislegri niðurstöðu nefndarinnar, heldur eingöngu að verkreglum hennar og vinnubrögðum. Í bréfinu ritaði ég: „Er það svo, að siðanefndin vilji ekki svara hver afstaða hennar er til þess skýra ákvæðis í starfsreglum að hún skuli kalla málsaðila fyrir? Er það svo, að siðanefndin vilji ekki upplýsa hver afstaða hennar er til hæfis nefndarmanna? Og vill siðanefndin í engu svara því hvort eðlilegt sé að sá málsaðili sem kærir fái ekki að vita hverju hinn kærði svarar, sem hlýtur þó að vera ein af forsendum úrskurðar? Að lokum: Ef þetta er afstaða siðanefndar Blaðamannafélags Íslands, þá óska ég eftir að fá það svar skriflegt frá siðanefndinni sjálfri." Ekkert svar hefur borist. Eru vinnubrögðin blaðamönnum að skapi?Mér þykir þetta mál umhugsunarvert fyrir blaðamenn. Eru þeir sáttir við þau vinnubrögð, sem siðanefndin hefur tamið sér? Uppfylla vinnubrögð nefndarinnar kröfur blaðamanna um gagnsæi og opna starfshætti? Eru þeir sáttir við að nefndin skuli ekki leggja öll spil á borðið og sýna skýrt hvernig hún vinnur úr þeim málum sem henni berast? Nú liggur fyrir að í kvöld verður kosið til formanns Blaðamannafélags Íslands. Eru frambjóðendurnir sáttir við þessa birtingarmynd ógagnsæis og leyndarhyggju? Í síðasta hefti Blaðamannsins, félagstíðinda BÍ, er sagt af viðbrögðum BÍ við skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Þar er m.a. skrifað á þá leið, að hér þurfi að vera lagaumhverfi, sem geri fjölmiðlum kleift að sinna hlutverki sínu í lýðræðisríki. Svo segir: „Fjölmiðlamönnum ber að sama skapi að líta sér nær og veita sjálfum sér faglegt eftirlit með sínum eigin reglum, siðareglum, vegvísi að faglegum vinnubrögðum." Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun VII. Aðförin að Ólafi Jóhannessyni Hafþór S. Ciesielski Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason skrifar Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Sjá meira
Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon Skoðun
Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon Skoðun