Rétt skal vera rétt Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar 28. apríl 2011 06:00 Vegna fréttar á bls. 2 í Fréttablaðinu 26. apríl sl. um tilboð í uppsteypu og utanhússfrágang Naustaskóla, 2. áfanga, finn ég mig knúinn til að koma eftirfarandi á framfæri. Við meðferð útboðsmála hjá sveitarfélögum og ríkinu er viðtekinn háttur að yfirfara gaumgæfilega hagstæðustu tilboð til að ganga úr skugga um að allir útreikningar standist. Í lýsingu útboða kemur skýrt fram að ef skekkjur finnast í tilboðsskrá skal gera viðeigandi leiðréttingar á niðurstöðutölum tilboðs. Í öllum tilvikum, hvort sem um hækkun eða lækkun er að ræða, ber að benda á viðkomandi reikningsskekkju og taka tillit til hennar. Í útboðslýsingum er ennfremur gerð krafa um að bjóðendur skili ársreikningum síðustu tveggja ára, árituðum af endurskoðanda, og að bjóðendur séu ekki í vanskilum með opinber gjöld eða lífeyrissjóðsgjöld starfsmanna sinna. Skilyrði um fjárhagsstöðu bjóðenda eru sett fram til að tryggja fjárhagslega hagsmuni verksins, að verktaki sem samið er við hafi fjárhagslega burði til að klára verkið og til að gæta jafnræðis meðal bjóðenda. Við yfirferð útboða vegna framkvæmda við Naustaskóla á Akureyri, 2. áfanga, kom í ljós skekkja í tilboði SS Byggis ehf. sem lækkaði tilboðsfjárhæð um tæpar 84 milljónir króna og gerði það að næstlægsta tilboði. Einnig varð ljóst að bjóðandinn Hamarsfell ehf./Adakris UAB, sem átti lægsta tilboð í verkið, uppfyllti ekki ofangreind skilyrði um skil á ársreikningum og opinberum gjöldum. Af þessum ástæðum var einboðið að taka næstlægsta tilboði. Af sömu ástæðum er fráleitt að halda því fram að verið sé að hygla heimamönnum með einhverjum hætti. Vísa má til fjölmargra dæma um að stórir verktakar annars staðar af landinu hafi, að undangengnu útboði, fengið umfangsmikil verkefni í byggingariðnaði á Akureyri. Má í því sambandi benda á hlut verktakans Ístaks hf. við byggingu Menningarhússins Hofs. Lögbannsbeiðni Hamarsfells ehf./Adakris UAB gegn Fasteignum Akureyrarbæjar vegna málsins hefur verið vísað frá. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Vegna fréttar á bls. 2 í Fréttablaðinu 26. apríl sl. um tilboð í uppsteypu og utanhússfrágang Naustaskóla, 2. áfanga, finn ég mig knúinn til að koma eftirfarandi á framfæri. Við meðferð útboðsmála hjá sveitarfélögum og ríkinu er viðtekinn háttur að yfirfara gaumgæfilega hagstæðustu tilboð til að ganga úr skugga um að allir útreikningar standist. Í lýsingu útboða kemur skýrt fram að ef skekkjur finnast í tilboðsskrá skal gera viðeigandi leiðréttingar á niðurstöðutölum tilboðs. Í öllum tilvikum, hvort sem um hækkun eða lækkun er að ræða, ber að benda á viðkomandi reikningsskekkju og taka tillit til hennar. Í útboðslýsingum er ennfremur gerð krafa um að bjóðendur skili ársreikningum síðustu tveggja ára, árituðum af endurskoðanda, og að bjóðendur séu ekki í vanskilum með opinber gjöld eða lífeyrissjóðsgjöld starfsmanna sinna. Skilyrði um fjárhagsstöðu bjóðenda eru sett fram til að tryggja fjárhagslega hagsmuni verksins, að verktaki sem samið er við hafi fjárhagslega burði til að klára verkið og til að gæta jafnræðis meðal bjóðenda. Við yfirferð útboða vegna framkvæmda við Naustaskóla á Akureyri, 2. áfanga, kom í ljós skekkja í tilboði SS Byggis ehf. sem lækkaði tilboðsfjárhæð um tæpar 84 milljónir króna og gerði það að næstlægsta tilboði. Einnig varð ljóst að bjóðandinn Hamarsfell ehf./Adakris UAB, sem átti lægsta tilboð í verkið, uppfyllti ekki ofangreind skilyrði um skil á ársreikningum og opinberum gjöldum. Af þessum ástæðum var einboðið að taka næstlægsta tilboði. Af sömu ástæðum er fráleitt að halda því fram að verið sé að hygla heimamönnum með einhverjum hætti. Vísa má til fjölmargra dæma um að stórir verktakar annars staðar af landinu hafi, að undangengnu útboði, fengið umfangsmikil verkefni í byggingariðnaði á Akureyri. Má í því sambandi benda á hlut verktakans Ístaks hf. við byggingu Menningarhússins Hofs. Lögbannsbeiðni Hamarsfells ehf./Adakris UAB gegn Fasteignum Akureyrarbæjar vegna málsins hefur verið vísað frá.
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun