Daníel Guðni ósáttur með aganefnd KKÍ: Ekki í fyrsta sinn í vetur sem þeir eru með allt niður um sig Smári Jökull Jónsson í Mustad-höllinni skrifar 17. janúar 2020 18:23 Daníel Guðni Guðmundsson er ekki sáttur með aganefnd KKÍ. Vísir/Daníel
Nú er í gangi leikur Grindavíkur og Hauka í Dominos-deild karla í körfuknattleik. Í viðtali við Daníel Guðna Guðmundsson, þjálfara Grindavíkur, fyrir leik kom fram mikil óánægja vegna mistaka aganefndar KKÍ í aðdraganda leiksins. Daníel sagði í viðtali við blaðamann Vísis að vegna mistaka agnefndar KKÍ væri Gerald Robinson í leikmannahópi Hauka í kvöld þrátt fyrir að hafa verið rekinn úr húsi í síðasta leik Hauka gegn KR. Robinson var rekinn úr húsí í gegn KR fyrir brot á Matthíasi Erni Sigurðarsyni undir lok leiksins gegn KR. Ef leikmenn fá brottvísun eiga þeir að fara í leikbann í næsta leik á eftir. Robinson er hins vegar með leikheimild í kvöld og Grindvíkingar eru allt annað en sáttir. „Það segir skýrt í lögum og reglugerðum hjá KKÍ hvernig aganefnd vinnur og ef leikmenn fá brottrekstur er það sjálfkrafa bann í næsta leik. Þetta er mjög sérstakt í hvaða sandkassa aganefndin er að vinna núna og þetta er ekki í fyrsta skipti í vetur sem þeir eru með allt niður um sig," sagði Daníel Guðni við Vísi nú fyrir leikinn í kvöld. "Þeir segja að það hafi orðið mistök í dómsorði. Hann var áminntur en á svo að vera í banni í næsta leik gegn Fjölni. Maður var búinn að undirbúa það þannig að sækja á þá þar sem Gerald væri ekki með. En við fengum að vita í dag að hann myndi spila og við þurfum að gíra okkur í það." Leikurinn er nýhafinn í Mustad-höllinni og hægt er að fylgjast með beinni textalýsingu með því að smella hér.
Dominos-deild karla Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn Emil Barja tekur við Stjörnunni Körfubolti Vilja ráða Iraola eða Lampard Enski boltinn Fleiri fréttir Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Sjá meira