Stýrivaxtaákvörðun hefur jákvæð áhrif á hlutabréfamarkað 20. desember 2007 19:56
Ákvörðun Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum hefur jákvæð áhrif á hlutabréfamarkaðinn en komandi kjarasamningar gætu sett strik í reikninginn.Ákvörðun bankastjórnar Seðlabankans var kynnt á fundi í morgun. Þrátt fyrir að verðbólguhorfur til skamms tíma hafi versnað og lítið dregið úr spennu á vinnumarkaði telur bankinn fyrirsjáanlegt að vaxtahækkanir í síðasta mánuði, minnkandi framboð lánsfjár og lækkandi fasteignaverð muni vinna með peningastefnu bankans til langs tíma litið. Því hafi verið ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 13,75 prósentum.Þá réð óróleiki á fjármálamarkaði miklu um ákvörðun bankastjórnar en hlutabréf hafa lækkað verulega í verði í Kauphöllinni að undanförnu.Davíð Oddsson seðlabankaastjóri segir það miður að ýmsir þeir sem hafa verið að ganga nokkuð langt í að koma sér upp hlutabréfaeign hafi seilst til þess að gera það með þungum lántökum og slíkir aðilar séu ýmsir illa settir um þessar mundir. Það þrengi einnig að og þess vegna hljóti menn að horfa til allra þessara þátta núna þegar menn velti fyrir sér hvers konar spenna verður í efnhagslífinu.Bankinn telur að með óbreyttum stýrivöxtum megi ná 2,5 prósenta verðbólgumarkmiðinu um miðbik árs 2009. En óvissuþættirnir eru margir og meðal annars gætu launhækkanir í tengslum við komandi kjarasamninga ýtt undir verðbólgu sem síðan myndi kalla á hækkun vaxta. Almennt er þó talið að ákvörðunin í morgun komi til með að hafa góð áhrif á hlutabréfamarkaðinn hérlendis.Ingólfur Bender hjá greiningardeild Glitnis segir að ákvörðunin sé í raun þess fallin að styrkja verð hlutabréfa. Hlutabréf hafi lækkað talsvert frá því að Seðlabankinn hækkaði vexti síðast. Í rauninni sé mjög gott að Seðlabankinn sé að horfa til stöðu fjármálamarkaðarins hvað þetta varðar.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira