Tónlist

Samkoma: Tónleikar með Teiti Magnússyni

Tinni Sveinsson skrifar
Teitur Magnússon kemur fram ásamt Ingibjörgu Elsu Turchi.
Teitur Magnússon kemur fram ásamt Ingibjörgu Elsu Turchi. Vísir

Klukkan ellefu heldur söngvaskáldið Teitur Magnússon tónleika hér á Vísi.

Tónleikaröðin nefnist Samkoma og verða tónleikarnir allir í beinni útsendingu hér á Vísi klukkan ellefu á morgnana. Það þýðir að tónlistarmennirnir flytja tónlist sína á afslappaðan máta yfir kaffibollanum.

Hægt er að horfa á beinu útsendinguna hér fyrir neðan en einnig á Facebook-síðu Vísis og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísir á kerfum Vodafone og Símans.

Klippa: Samkoma - Teitur Magnússon

Vísir hefur fengið leikstjórann Ágúst Bent til liðs við sig til að halda utan um tónleikana og er framleiðslan í höndum Skjáskots. Á mánudag mætir Krummi Björgvinsson til leiks.

Ellen Kristjáns hélt afar vel heppnaða tónleika á miðvikudag ásamt Þorsteini Einarssyni og Gauki Davíðssyni. Hægt er að horfa á þá hér á Vísi. Þá kom Teitur Magnússon í gær og flutti lög sín á töfrandi máta. Hægt er að horfa á hann hér á Vísi.

Tónlistarmaðurinn Sturla Atlas hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi frá því hann gaf út sína fyrstu breiðskífu árið 2015, plötuna Love Hurts. Hann hefur einnig gefið út plöturnar These Days, SEA­SON2 og 101 Nig­hts. Fyrir skemmstu kom síðan út fyrsta plata hans á íslensku, 

Tónlistin er eins konar blanda af rappi og r&b og mjög í takt við tónlist samtímans.

Í tónleikaröðinni Samkoma mæta þekktir íslenskir tónlistarmenn og flytja tónlist sína á afslappaðan máta yfir morgunbollanum. Tónleikarnir eru unnir í samstarfi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Kjarvalsstofu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×