Verðbólgan kemur ekki á óvart 16. janúar 2005 00:01
Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, segir að nýjar verðbólgutölur, sem sýna að verðbólgan er við efri þolmörk Seðlabankans, komi ekki á óvart. "Þetta er í samræmi við okkar spár og ekkert óvænt að gerast. Við vissum að það væri líklegt að við færum yifr þessi mörk snemma á þessu ári og það hefur legið fyrir frá því snemma á síðasta ári," segir hann. Hann segir vonir hins vegar standa til þess að ársverðbólgan lækki töluvert þegar líður á árið. "Ef okkur tekst að halda okkur innan við þær hækkanir sem urðu í mars og apríl í fyrra munum við sjá hjaðnandi verðbólgu nú á vormánuðum," segir Arnór. Nokkuð hefur verið gagnrýnt að opinberar gjaldskrárhækkanir hafi lyft verðbólgunni í síðustu mælingu. Arnór segir hins vegar að það ætti ekki að hafa komið á óvart að slíkar hækkanir ættu sér stað í þessum mánuði, það væri alvanalegt, og hækkanirnar nú séu minni en þær voru í fyrra. "Það sem hefur verið að gerast á síðustu árum er að verðlag á opinberri þjónustu hefur verulega dregist aftur úr hækkunum á almennum markaði. Síðan hafa þessar gjaldskrár verið að rétta sig af og nálgast verðbreytingar annars staðar," segir hann. Arnór á því von á að verðbólga fari hjaðnandi á næstu mánuðum. "Það sem er að hjálpa okkur er sterkt gengi krónunnar," segir hann. Arnór segir að Seðlabankinn hafi brugðist kröftuglega við þróun í efnahagsmálum með vaxtahækkunum á síðasta ár og minnir á að bankinn hafi gefið sterklega í skyn að hann muni áfram hækka stýrivextina. Hann segir einnig að varast beri að gera of mikið út gildi hinna svokölluðu þolmarka vaxtastefnu Seðlabankans. "Auðvitað er ekki mikill munur á fjögurra prósent verðbólgu og 4,1 prósent verðbólgu. Það eina sem gerist er að við þurfum mað skrifa þetta bréf," segir hann. Um áframhaldandi þróun segir Arnór að fyrst og fremst huga að því sem að honum snýr og beita þeim tækjum sem hann býr yfir. "Auðvitað myndi það hjálpa mikið ef frekara aðhald kæmi frá öðrum vígstöðvum; svo sem ríki og sveitarfélögum," segir hann.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira