Dómgreindarleysi stjórnvalda er með eindæmum Hallgrímur Sveinsson og Hreinn Þórðarson skrifar 19. nóvember 2010 10:26 Á sjúkrahúsinu á Ísafirði er áætlað að skera niður um 197 milljónir króna á næsta ári. Það þýðir lokun. Það er þyngra en tárum taki. Á sama tíma er verið að bruðla miskunnarlaust með opinbert fé á fæðingarstað Jóns Sigurðssonar, Hrafnseyri við Arnarfjörð, svo undrun hlýtur að vekja og spurningu um hvort stjórnvöld séu nú endanlega orðin kexrugluð. Tilkynnt var 17. júní sl. um 60-70 milljóna króna fjárveitingu til Hrafnseyrar vegna 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar. Allt vegna þess að nú á að setja þann gamla í plexígler, plast og rafrænt form, samkvæmt „spennandi tillögu" sem kynnt var með pomp og prakt. Engin sundurliðuð kostnaðaráætlun fylgdi, enda ekki spurt um slíkt, síst af fjölmiðlum. Samkvæmt gamla stílnum verður svo farið fram á aðra fjárveitingu ef að líkum lætur, því grunur margra hér vestra er að þessi dugi skammt. Og einmitt núna þegar tilkynnt er um lokanir sjúkrahúsa, standa yfir miklar „endurbætur" á húsakynnum á Hrafnseyri. Þar stendur varla steinn yfir steini, svo umfangsmiklar eru þær. Samt var nýlega varið milljónum króna í endurnýjun gólfefna, parket meira og minna, nýjar og fullkomnar vatnslagnir, málningu og nefndu það bara. Mikið af þessu hefur verið molað mélinu smærra. Þetta er þvílíkt rugl að fáheyrt verður að telja. Vinstri höndin hefur ekki hugmynd um hvað sú hægri er að gera. Svo tekur út yfir allan þjófabálk að áður en þessar „spennandi" endurbætur hófust var eitt besta aðgengi sem fyrirfannst á Vestfjörðum fyrir hreyfihamlaða einmitt á fæðingarstað Jóns Sigurðssonar. Nú er búið að splundra því til að setja upp eitthvert snobbkerfi fyrir framan húsið í staðinn. Steinsteypa og plexígler fyrir milljónir króna í stað Prestastéttarinnar sem kölluð var og dugði fullkomlega. Svo datt einhverjum spekingum í hug að nú væri einmitt rétti tíminn til að byggja nýja heimreið á Hrafnseyrarstað, þrátt fyrir enga þörf. Þar hefur nú fjöldi stórvirkra vinnuvéla verið að verki uppundir mánuð og framið slík skemmdarverk á staðnum að hlýtur að varða við lög. Eyðilegging á náttúruperlu. Rúsínan í pylsuendanum er svo sú, að nýja heimreiðin verður helmingi lengri en sú gamla og er lögð á mestu snjóastöðum sem fyrirfinnast í Hrafnseyrarhvammi. Hver skyldi bera ábyrgð á þessari hrikalegu vitleysu? Bóndinn á Auðkúlu, Hreinn Þórðarson, neitaði Vegagerðinni um efnistöku á landi sínu vegna þessarar nýju heimreiðar. Varla kemur slíkt oft fyrir. Kveikir það ekki á neinum perum, að maður sem hefur búið alla sína ævi í nágrenni við Jón Sigurðsson, neitar að standa að svona rugli, þrátt fyrir að peningar séu í boði? Hvers konar forgangsröðun er það að byggja óþarfa heimreið í minningu og af virðingu við Jón Sigurðsson, eins og formaður Hrafnseyrarnefndar komst svo hnyttilega að orði, í stað þess að minnast hans með því til dæmis að sjá til þess að allir Íslendingar hafi nóg að bíta og brenna? Og brytja niður húsið á staðnum. Óskiljanlegt. Samtímis og þjóðin rambar á barmi örvæntingar vegna hótana um að loka þurfi sjúkrahúsum á landsbyggðinni vegna fjárskorts! Dómgreindarleysi á háu stigi. Margir sem til þekkja telja að Hrafnseyrarvitleysan kosti ekki undir 100 milljónum þegar upp verður staðið. Síðan er allt annað bruðl sem sannanlega er þar í gangi og hefur verið undanfarin ár samkvæmt beinhörðum opinberum tölum. Sumir Vestfirðingar kalla framkvæmdirnar á Hrafnseyri náttúruhamfarir af mannavöldum, meðan aðrir segja að þær jaðri við að vera glæpsamlegar. En loka sjúkrahúsinu á Ísafirði, það skulum við gera! Ekki kæmi á óvart að stundum glitruðu tár á hvarmi á styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli þessa dagana. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun Skoðun Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvaða plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ef ég C með hattinn, fer ég örugglega í stuð Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Siglunes, já eða nei? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, ójöfnuður og þátttaka barna í íþróttum á Akureyri Sigrún Steinarsdóttir skrifar Skoðun Heimsveldið og hjúkrunarkonan Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Lægri vextir eru STÓRA MÁLIÐ Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Tækni með tilgang Einar Stefánsson skrifar Sjá meira
Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Kostnaður, ójöfnuður og þátttaka barna í íþróttum á Akureyri Sigrún Steinarsdóttir skrifar
Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun