Ákall! Nýtt afl Gunnar Magnússon skrifar 9. desember 2010 04:00 Nú er endanlega ljóst að þessi ríkisstjórn ætlar ekkert að gera nema halda fólki í gíslingu um ókomin ár og setja upp lausnir sem gagnast í raun engum nema að því leyti að eitthver hluti fólksins fær að vera í húsnæðinu áfram sem þrælar nútímans. Nú þurfum við að óska eftir forustu fyrir nýjan stjórnmálaflokk, sem hefur að hagsmunum að afnema verðtryggingu og sameina lífeyrissjóði í einn þannig að allir landsmenn hafi sömu réttindi. Gæta að hagsmunum heimilanna og klíkuráðningum í þjóðfélaginu. Við getum ekki sætt okkur við þann kostnað sem kostar að reka marga lífeyrissjóði, margar stjórnir og sér húsnæði fyrir hvern lífeyrissjóð. Þessi óþarfakostnaður nemur hundruðum milljóna á ári. Einnig þarf að láta rannsaka það fólk sem hefur stjórnað landinu hingað til og jafnvel að fara útí eignaupptöku hjá, sennilega mjög mörgum. Ætlun þessarar ríkisstjórnar í dag er að ræna þá sem hafa hingað til haldið þjóðfélaginu uppi til að greiða skuldir banka og lífeyrissjóða. Er það réttlátt að millistéttin sem hefur haldið þjóðinni uppi missi allt sitt og detti niður fyrir fátæktarmörk? Fólk á rétt á að halda því sem það hefur unnið fyrir. Er það rétt að kæfa niður duglegt fólk sem aflar tekna og borgar gjöld? Hagsmunasamtök heimilanna hafa komið með tillögu um að færa öll lán, íslensk sem erlend, til 01.01.2008. Frá þeim tíma verða öll lán íslensk með verðbótaþaki 4%. Lækkandi með tímanum og verðbótalaust um ókomna framtíð. Einfalt og réttlátt Fólkið sem tók lánin miðaði við verðbólgumarkmið seðlabankans, sem brást illilega. Afnemum verðtryggingu sem allra fyrst, þá mun fólk vita nákvæmlega í krónum hverjar næstu greiðslur verða af fasteignalánum og við losnum alfarið við okurvexti og óvissu. Tillaga er að láta kanna hvað allir þessir lífeyrissjóðir hér á landi eru með í launakostnað og þá sundurliðað. Framkvæmdastjóri, stjórn og annar kostnaður. Einnig húsnæðið, verðmæti þess. Sú upphæð hefur verið tekin af greiðslum og sparnaði fólksins. Allur kostnaður sem einhversstaðar er t.d. ferðakostnaður og kostnaður við ökutæki. Þennan kostnað má örugglega skera niður með því að sameina alla lífeyrissjóði í einn. Eitt skal yfir alla ganga. Við erum öll jöfn að verðleikum. Hvað töpuðu lífeyrissjóðirnir miklu? Gerum það opinbert hvað hver fyrir sig tapaði miklu og einnig hvað þeir keyptu af skuldum heimilanna. Hafa lífeyrissjóðirnir eitthvað að fela? Við erum aðeins um 300.000. og ættum öll að vera í þeirri aðstöðu að fá það 100% til baka sem við höfum lagt í sjóðina, ásamt vöxtum. Leggjum niður samtryggingakerfið. Það getur hver fyrir sig keypt sér tryggingar sem þjóna því sama. Það er mun betra að hver fyrir sig fái sitt að fullu ásamt vöxtum sem viðkomandi hefur lagt í sjóðinn. Fólkið á skilið að geta verðlaunað sig með góðum lífeyri eftir mikla vinnu. Stjórnmálamenn eru jú öruggir með himinhá lífeyrislaun, þessvegna er þetta mál mjög viðkvæmt og helst ekki rætt nema með útúrsnúningum og síðan þaggað niður. Þessar fjölskyldumafíur sem eru á föstum launum í vissum embættismannakerfum, m.a. félagslega kerfinu og velferðarkerfinu. Er það tilfellið að þarna eru alltaf sömu fjölskyldurnar og að engir nýir straumar komist þar að? Sjá umfjöllun í Silfri Egils 05.12. (Ásgerður Jóna Flosadóttir). Það er til fullt af góðu og frambærilegu fólki eins og t.d. Ásgerður Jóna Flosadóttir, Lilja Mósesdóttir og margir fleiri eins og t.d. stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna. Nú vantar gott fólk til að gera einfalda og góða hluti! Komum þessi liði sem hefur verið í áskrift á þingi, árum og áratugum saman, frá völdum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun