Þarf að ræða þetta eitthvað frekar? Hans Guttormur Þormar skrifar 9. desember 2010 04:00 Palli, Sigga og Eiki eru að hugsa um að fara á frumsýningu í bíó. Það sérkennilega við bíóhúsið er hins vegar að það býður bíógestum að semja um miðaverð. Palla langar eiginlega ekkert að fara á þessa mynd en fer í samningaviðræður vegna þrýstings frá Siggu og Eika. Hann myndi því sennilega reyna að gera samning um svo lágt miðaverð að hann fengi það aldrei í gegn. Það myndi líka henta honum best. Siggu langar að fara í bíó en er ekki tilbúin að borga allt of mikið fyrir það. Hún fer í samningaviðræður með það markmið að ef hún fær miðann á viðunandi verði, þá fer hún í bíó. Eika langar mjög mikið til að fara á þessa mynd og fer í samningaviðræður með það að markmiði að komast í bíó. Hann kemur því sennilega til með að borga hæsta miðaverðið. Hverjum af þessum þremur myndir þú treysta best til að semja um miðaverð í bíó fyrir þína hönd? Samninganefnd og samningahópar Íslands um aðild að Evrópusambandinu munu á næstu mánuðum vinna rýnivinnu vegna samningaferilsins sem svo fer í gang eftir að þeirri vinnu er lokið. Þrátt fyrir að hver samningahópur samanstandi af tíu til tuttugu einstaklingum er nánast undantekningarlaust um að ræða hagsmunatengda aðila sem annað hvort eru nú þegar á móti eða meðfylgjandi aðild að Evrópusambandinu (líkt og Palli og Eiki hér að ofan). Heildarhagsmunir þjóðarinnar með eða án ESB til framtíðar eru fyrir borð bornir. Lítið bólar á því sem öllu máli skiptir, að það séu heildarhagsmunir þjóðarinnar, almennings í landinu sem eigi að ráða úrslitum. Hver þessara hagsmunaaðila í samningahópunum hugsar eingöngu um sig og fáir þeirra munu taka tillit til heildarhagsmuna þjóðarinnar. Í þessu máli hefur utanríkisráðherra Össur Skarphéðinsson ákveðið að skilja Siggu (þjóðina) eftir heima og bjóða Palla og Eika (sérhagsmunaöflunum) að sjá um málið eða einmitt þeim aðilum sem ég myndi síst treysta til að reyna að semja um aðild fyrir mína hönd. Einsleitnin er mjög áberandi og til dæmis eru í samninganefnd um sjávarútvegsmál þrír aðilar frá LÍÚ, þrír aðilar frá Alþýðusambandinu, auk aðila frá Farmanna- og fiskimannasambandi, samtökum fiskvinnslu, framleiðslu og útflytjenda, kvótamarkaðar o.s.frv. Allir þessir einstaklingar eru kallaðir til til að gæta sérhagsmuna sinna félagsmanna en fáir hafa þá yfirsýn sem þarf til að spyrja hvort þetta þjóni eða þjóni ekki framtíðarhagsmunum þjóðarinnar. Starfsmenn ráðuneytanna geta seint talist hagsmunagæsluaðilar almennings. Eina bakland þjóðarinnar er hugsanlega að finna í örfáum einstaklingum samningahópa og aðalsamninganefndar en þeir geta lítið aðhafst vegna þeirrar slagsíðu öfgaviðhorfa sem einkennir samningahópana. Við þurfum að hætta að hlusta á Palla og Eika. Þeirra skoðanir eru eingöngu byggðar á sérhagsmunum og því eiga þeir engan rétt til að sitja einir að samningaborðinu. Það er mín von að utanríkisráðherra finni fleiri „Siggur" í hverja nefnd, til að gæta að heildarhagsmunum íslensku þjóðarinnar. Það þarf að meta í hvaða stöðu þjóðin er núna og hvað væru bestu kostirnir með eða án ESB, í hvaða stöðu þjóðin verður ef til inngöngu kemur og í hvaða stöðu þjóðin verður hugsanlega eftir nokkra áratugi hvort sem af inngöngu verður eða ekki. Einungis eftir þannig undirbúning og samningsferli er mögulegt fyrir þjóðina að taka upplýsta ákvörðun um hvort aðild að Evrópusambandinu sé vænlegur kostur eða ekki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun Skoðun Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun