Mikilvægi leikskólastjóra Erla Stefanía Magnúsdóttir skrifar 9. desember 2010 06:15 Undirrituð skrifaði meistaraprófsritgerð sem fjallaði um áhrif og mikilvægi stjórnenda á störf leikskólakennara og hvernig þeir þrífast og dafna í starfi. Yfirskriftin ritgerðarinnar var" Leder- pædagog-trivsel og læring". Ástæðan fyrir efnisvali var meðal annars áhugi eftir meistaranám sem og reynsla eftir átta ára starf sem leikskólaráðgjafi á Fræðsluskrifstofu Kópavogs. Mikið hefur breyst á síðustu árum og nú geta leikskólastjórar ekki lengur stjórnað skólum með tilfinningum sínum heldur verða þeir að mæta auknum faglegum kröfum og takast á við breytingar og fleiri vandamál en nokkru sinni fyrr. Stjórnunarþátturinn verður alltaf veigameiri og minni tími gefst til að sinna faglegu starfi með börnunum. Í rannsókninni var eingöngu horft á innri þætti skólanna en ekki ytri áhrifaþætti eins og fjölda barna, lög og reglugerðir og annað sem hefur áhrif á starf stjórnandans. Viðtöl voru tekin við kennara og stjórnendur í leikskólum í Gladsaxe kommune í Danmörku og einnig stuðst við eldri rannsóknir, m.a. frá Per Erik Ellström, Knud Illeris, Lave og Wenger, og Moos. Samkvæmt ofangreindum rannsóknum hefur stjórnun skólanna mikil áhrif á velferð og hæfni kennara í starfi og þróun og framvindu kennarastarfsins. Stjórnendur þurfa að búa yfir hæfni til að skapa faglegan vinnustað þar sem ríkir góður andi og fyrirkomulag og skipulag á allri starfseminni þarf að ganga upp. Leikskólastjórinn deilir út verkefnum og þarf að sjá til þess að fagleg menntun kennaranna nýtist starfinu sem best og starfið eigi þátt í að þroska kennarann í starfi. Wahlgren og fleiri (2002) segja að sú menning sem stjórnandinn skapi á vinnustað verði til þess að hæfni kennarans aukist og möguleikar hans til að þróa sig í starfi verði meiri. Þeir segja einnig að þetta hafi áhrif á sjálfstæði vinnubrögð og möguleikanum á því að auka þekkingu sína innan skólans. Þá leiða rannsóknir í ljós að sá andi sem leikskólastjórnendur skapa á vinnustaðnum getur aukið hæfni kennaranna og bætt möguleika þeirra til að þróa sig í starfi. Einnig hafi það áhrif á sjálfstæð vinnubrögð kennara og efli þekkingu þeirra innan skólanna. (Wahlgren og fleiri 2002). Það sama styðja fleiri rannsóknir. Moos (2003) talar um þrjár stjórnunartegundir innan skólans og sú fyrsta fjallar um eiginleika stjórnendans, önnur fjallar um vald og áhrif og sú þriðja um fjallar um tengsl milli starfsfólks á vinnustaðnum. Þar kemur skýrt fram mikilvægi stjórnendans í starfi skólans og þýðingu hans á vinnustaðnum. Í viðtölum kom skýrt fram að aðkoma stjórnenda hefur mikil áhrif á stuðning stjórnenda við leikskólakennara varðandi endurmenntun og öll erfið mál. Einnig kom skýrt fram að viðurkenning frá stjórnendanum hefur mikla þýðingu í því hvernig kennarinn þrífst í starfi. Kennararnir höfðu jafnframt sterkar skoðanir á því hvernig góður stjórnandi á að vera og nefndu meðal annars kosti eins og þá að vera sveigjanlegur, ábyrgur, góður hlustandi og að vera til staðar. Einn sagði ,,Ég er glöð þegar ég mæti til vinnu því ég er með góðan leikskólastjóra, upplifi mig mikilvæga og sem hluta af faglegri heild." Niðurstöður rannsóknarinnar voru ótvíræð. Leikskólastjórar hafa afgerandi áhrif ástörf leikskólakennara og hvernig þeir læra og dafna í starfi. Bæði rannsóknir, kenningar og viðtöl sýna fram á að eftir því sem stjórnandinn er hæfari er mun minna um starfsmannaveltu. Það er nokkuð ljóst að þetta undirstrikar það að „ eftir höfðinu dansa limirnir." Ég sem hef starfað sem leikskólastjóri í rúmt ár sé enn betur í „praksis" mikilvægi mitt sem stjórnanda en rannsóknin mín gaf til kynna. Þegar ég kem heim á kvöldin hugsa ég oft af hverju er ég svona þreytt, ég þessi mikli orkubolti? En er það nokkuð skrýtið? Það fara 400 manns inn og út af vinnustaðnum mínum yfir daginn, 120 börn, 240 foreldrar og nærri 40 starfsmenn. Ég tala við minnst 50% þeirra daglega, síðan eru samskipti við launadeildina, bókhaldið og aðra samstarfsaðila. Ef kokkurinn er veikur þá þarf að elda fyrir 150 manns í mat, baka brauðin, einnig þarf að leysa af í veikindum, gera launaáætlun, launaskýrslu, hagstofuskýrslu, skrifa fréttabréf, skipuleggja stjórnendateymisfundi og svona mætti lengi telja. Þetta er fjölbreyttasta og eitt mikilvægasta starfið innan skólanna Við erum það sem heldur starfinu gangandi, tökum þátt í gleði og sorg starfsmanna, barna og fjölskyldna þeirra ásamt öllu öðru sem inn á okkar borð kemur. Það er því mjög mikilvægt að styðja við okkur stjórnendur svo við náum að hlúa að öllum öðrum og því er sú tillaga að fækka stjórnendum algjör tímaskekkja og mun hafa neikvæð áhrif á allt starf í leikskólum. Leikskólastjórar hafa eins og staðan er í dag nóg á sinni könnu og ef þeir eiga að sinna starfi einhvers annars kemur það til með að bitna harkalega á öllu því góða starfi sem fram fer á leikskólum landsins eins og nefnt var hér fyrir ofan. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson Skoðun Skoðun Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun