Tveir mikilvægir á Laugardalsvelli Gunnar Svavarsson skrifar 16. október 2012 06:00 Það hefur nokkuð verið skrifað um vínveitingar á íþróttasvæðum á umliðnum árum, m.a. hvort leyfa eigi sölu á léttu víni og bjór á Laugardalsvelli. Ég ætla ekki að skrifa um það. Ég ætla að skrifa um það þegar Ron Saunders, framkvæmdastjóri Aston Villa, gat leyft sér það að „stúta“ úr einum pela af „Whisky“ á meðan Evrópuleikur Vals og Aston Villa fór fram fyrir rúmum þrjátíu árum síðan. Blaðamennirnir sem fjölluðu um leikinn tóku svona til orða því Saunders sást súpa við og við á bekknum af pelanum, en það þótti ekki tiltökumál því það var haust og þessi rosalegi árans norðanstrekkingur á Laugardalsvelli. Sagt var í umfjöllun að þeir nær 4.000 áhorfendur sem voru á leiknum hafi verið nær króknaðir af kulda. Við vorum nokkur saman á leiknum og þegar við gengum heim, upp í Hlíðar, með kuldabolann upp úr og niður úr, þá vorum við ófá sem hétum því að fara aldrei aftur á leik að hausti í skítakulda. Það loforð er fyrir löngu margbrotið, bæði á Laugardalsvelli, í Kaplakrika og á fleiri knattspyrnuvöllum. Því þó að það blási vindar og himnarnir gráti þá þarf fólk að vera til staðar á vellinum til að fylgjast með knattspyrnunni. Án áhorfenda hefur leikurinn einfaldlega minna vægi. En af hverju að vera að rifja þetta upp núna þegar Íslandsmótið er búið bæði í karla- og kvennaflokki. Jú, það eru nefnilega tveir mikilvægir leikir eftir á Laugardalsvelli og þeir verða spilaðir jafnvel þó að það verði norðanstrekkingur. Strákarnir byrja þriðjudaginn 16. október kl. 18.30, nýkomnir frá Albaníu, og spila gegn feiknasterku liði Sviss í undanriðli HM 2014. Stelpurnar mæta svo á völlinn fimmtudaginn 25. október kl. 18.30 til að spila síðari leik sinn við Úkraínu í umspilinu um sæti í lokakeppni Evrópumótsins 2013. Í baráttunni fram undan þurfa stelpurnar og strákarnir á stuðningi okkar að halda og þau eiga hann líka skilinn. Við sjálf getum stuðlað að betri árangri hjá landsliðunum okkar með því að styðja þau allan ársins hring. Leikmenn munu ekki láta það á sig fá þó svo að það verði kalt og blautt á Laugardalsvelli á keppnisdegi. Þau mæta til leiks, sama hvernig viðrar og leikmennirnir vilja svo sannarlega að fólkið mæti á völlinn og hvetji liðið sitt áfram. Þrátt fyrir það að Ron Saunders muni ekki ganga um stúkuna með „Whisky“ pela, þá hvet ég alla knattspyrnuvini til að koma á Laugardalsvöll, sama hvernig viðrar. Það skiptir liðin máli. Áfram Ísland. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar