Áhrif ferðabanns, ferðatakmarkanna og efnahagsástands hafa einnig neikvæð áhrif á rekstur ferðaskrifstofa. Mælst er til þess að fólk fái inneignarnótur í stað endurgreiðslu.
Hjón sem áttu draumaferð pantaða um páskana segja galið að leggja ábyrðina á herðar viðskiptavinarins.
Neytendastofa gaf út í síðasta mánuði leiðbeiningar um inneignarnótur og breytinga pakkaferða vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið beinir því til ferðamanna sem ferðast með íslenskum ferðaskrifstofum að huga vel að því hvort þeir geti tekið við inneignarnótu fyrir pakkaferð í stað endurgreiðslu.
Sjá einnig: „Við erum enginn banki fyrir ferðaskrifstofur“
Hjón sem hafa safnað í marga mánuði fyrir tíu daga draumferð til Egyptalands á vegum Úrval útsýn áttu að fara um páskana. Ferðina borguðu hjónin í október, um eina milljón króna. Ljóst var að ferðin yrði ekki farin og enn hefur engin endurgreiðsla hefur borist frá ferðaskrifstofunni.

Fráhrindandi að taka við inneignarnót frá ferðaskrifstofu á þessum tímum
„Þetta er fyrirtæki sem við vitum ekki hversu stöndugt er og þetta er mikill peningur fyrir okkur og á meðan er peningurinn ekki að vinna fyrir okkur. Hann er að vinna fyrir þá,“ segja Kolbrún Hildur Gunnarsdóttir og Hreinn Baldursson.
Sjá einnig: „Við erum enginn banki fyrir ferðaskrifstofur“
Þau telja marga vera í þeirra sporum en í þeirra hópi voru tuttugu manns. Þau segja erfitt að leggja traust sitt á ferðaskrifstofur á tímum sem þessum.
„Það er mjög óvíst hvernig staðan verður seinna meir hvort að það sé hægt að stóla á það og hvort þær verði við lýði enn þá,“ segir Hreinn.
Þá finnst þeim galið að ábyrgðin sé lögð á herðar viðskiptavina.
„Ég er eiginlega orðin það fúl að ég fæ mér þá bara lögfræðing. Þó við þurfum að borga rándýran lögfræðing til að fá þá málinu hengt og fá einhvern pening til baka,“ segir Kolbrún.