Fékk hjólastólahjól í óvænta sumargjöf Samúel Karl Ólason og Nadine Guðrún Yaghi skrifa 23. apríl 2020 20:00
Þrettán ára stúlka sem sem misst hefur alla hreyfifærni í fótunum fékk svokallað hjólastólahjól, hjól þar sem aðstoðarmaðurinn hjólar, óvænt í sumargjöf í dag. Fjöldi Íslendinga styrki fjölskyldu Rakelar svo hægt væri að láta draum hennar, um að geta hjólað í sumar, ræsast. Í febrúar síðast liðnum fjallaði Vísir um Rakel Ósk, þrettán ára gamla stúlku, sem er með CP-fjórlömum. Það var eftir að söfnun hafði verið hrint af stað, svo að hægt væri að kaupa svokallað hjólastólahjól, hjól þar sem aðstoðarmaðurinn hjólar, handa henni. Þegar Rakel var sex ára missti hún hreyfifærnina í fótunum en fyrir þann tíma var hún dugleg að hjóla - það var í rauninni það skemmtilegasta sem hún gerði. Söfnunin gekk gríðarlega vel og það tók aðeins þrjá daga að safna fyrir hjólinu sem kostar 1,4 milljónir króna með sendingarkostnaði. Sjá einnig: Vona að draumurinn rætist fyrir fermingardaginn Í dag fékk Rakel Ósk hjólið afhent en hún hafði ekki hugmynd um hvað biði hennar þegar hún kom út úr húsinu. Hún var í raun orðlaus. Ekki var hún þó lengi að jafna sig og vildi ólm fara í hjólatúr með systur sinni. Upphaflega stóð til að Rakel Ósk fengi hjólið í fermingargjöf en þar sem fermingunni var frestað vegna kórónuveirunnar, var sumargjöfin heldur vegleg í ár. Hægt er að sjá Rakel hjóla á nýja hjólinu sínu í spilaranum hér að ofan.
Fermingar Hjólreiðar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Heimamanna bíður það verkefni að finna nafn á nýja lónið sem er komið til að vera Innlent Hítará hefur fundið sér nýjan farveg Innlent Veiðileyfasali fékk engar bætur dæmdar fyrir þjófnað í Kjarrá Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Sigurþór ráðinn framkvæmdastjóri SVFR Innlent Dularfulla minkagildruhvarfið Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira