Innlent

Stjórnarandstaðan gerir miklar athugasemdir við aðgerðir ríkisstjórnarinnar

Heimir Már Pétursson skrifar

Stefnt er að því að ljúka fyrstu umræðu um frumvörp ríkisstjórnarinnar vegna annars aðgerðapakka hennar á Alþingi í kvöld. Stjórnarandstaðan gagnrýnir meðal annars að ekki sé nóg að gert fyrir heimilin í landinu og að neytendur eigi að bera kostnaðinn af óförnum ferðalögum.

Aðgerðir upp á 60 milljarða sem ríkisstjórnin kynnti í gær birtast í fimm stjórnarfrumvörpum sem þingmenn hófu að ræða í dag.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mælti fyrst fyrir frumvarpi til fjáraukalaga sem tryggja á fjáröflun aðgerðanna.

“Þegar fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar voru kynntar voru vonir bundnar við að efnahagssamdrátturinn yrði skammur og hagkerfið gæti unnið sig titölulega hratt út úr erfiðleikunum. En nú hafa líkur aukist á að hann verði dýpri og langvinnarri. Ekki síst vegna alþjóðlegra ferðatakmarkana með gríðarlegum áhrifum á ferðaþjónustu,” segir Bjarni.

Fjármálaráðherra fór yfir þær aðgerðir sem núá að grípa til sem bætast ofan á 230 milljarða aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar fráþví fyrir mánuði. Nú væri að auki komið til móts viðýmsa viðkvæma hópa sem og smærri fyrrtæki meðýmsum aðgerðum.

Stjórnarandstöðuflokkarnir lýstu allir vonbrigðum með að ekki væri gert meira fyrir heimilin í landinu í aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar. Frumvörp ríkisstjórnarinnar taka væntanlega töluverðum breytingum í meförum þingsins. Vísir/Vilhelm

Stjórnarandstöðuflokkarnir lögðu allir til að gert yrði meira á ýmsum sviðum. Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar sagði að í kynningu ríkisstjórnarinnar í gær hafi hvergi verið minnst á heimilin.

“Það segir allt um áherslur ríkisstjórnarinnar. Hvar eru beinu aðgerðirnar sem eru fyrir fólkiðí landinu? Finnst ráðherra boðlegt að láta allt að láta allt að einn fjórða Íslendinga fara á 290 þúsund króna atvinnuleysisbætur,” spurði Ágúst Ólafur.

Fjármálaráðherra sagði að þingmaðurinn þyrfti að átta sig á því að á heimilum landins byggi fólk.

“Og það fer að heiman til vinnu í fyrirtækjum, stofnunum og víðar í samfélaginu. Þannig aðþegar við erum að tryggja að fyrirtækin geti lifað af og greitt laun erum við meðóbeinum hætti að styðja við heimilin. Við tekjur heimilisins, við rekstur heimilanna. Við framfærslu heimilanna og fjölskyldna sem þar búa. Þetta verður ekki slitiðí sundur. Algerlega fráleitur málflutningur að slíta þetta tvennt í sundur,” sagði Bjarni.

Umræðurnar um fjáraukalagafrumvarpið stóðu langt fram eftir degi. En stefnt er aðþví að koma öllum frumvörpunum fimm til nefnda í kvöld þar sem líklegt er aðþau taki nokkrum breytingum eins og fyrri aðgerðapakki gerði í meðförum Alþingis. Atkvæðagreiðsla um frumvörpin fer síðan væntanlega fram í næstu viku.


Tengdar fréttir

Fimm frumvörp og upplýsingaóreiða

Fjögur frumvörp um aðgerðir vegna kórónuveirunnaFrestun á skatt­greiðslum er vara­samt sprengju­svæðir sem kosta munu ríkissjóð 60 milljarða og fjáraukalagafrumvarp til að tryggja þau úrgjöld verða rædd á Alþingi í allan dag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×