Viðskipti innlent

Blómasala í miklum blóma þvert á væntingar

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Blómin gleðja.
Blómin gleðja. Unsplash/Ivan Jectic

Þrátt fyrir að blómasala hafi tekið dýfu strax eftir að samkomubannið var sett á um miðjan marsmánuð hefur blómasala tekið við sér á nýjan leik. Segja má að hún sé í miklum blóma.

„Þegar að samkomubannið var sett á kom góð dýfa í sölu. Skiljanlega, það héldu allir að sér höndum. Blómakaupmenn vissu ekki hvað biði þeirra enda engar samkomur eða athafnir framundan,“ segir Axel Sæland hjá garðyrkustöðinni Espiflöt í samtali við Vísi.

Því undirbjuggu Axel og félagar sig undir minnkandi sölu, ráðgerðu að setja starfsmenn í 70 prósent starf samkvæmt hlutabótaleiðinni og undirbjuggu hvernig væri hægt að draga úr framleiðslu. Áfram var þó selt í stórmarkaði og til blómaverslana.

„Í framhaldinu fundu blómasalar fyrir því að fólk væri að leita að einhverju til að gleðja og ekkert endilega bara sjálft sig. Það er náttúrulega mjög mikið af fólki sem hefur verið í einangrun. Fólk vildi koma einhverju til þeirra og gleðja þá með einhverju. Blóm urðu greinilega fyrir valinu þar. Það má segja að þetta sé snertifrí gjöf,“ segir Axel.

Hin blómstrandi blómasala hefur gert það að verkum að Espiflöt þarf ekki að nýta sér hlutabótaleiðina, starfsmenn eru í 100 prósent vinnu og ekki þarf að draga úr framleiðslu.

Og staðan er nú þannig að það er beðið eftir framleiðslunni hjá Espiflot og telur Axel að það sama sé uppi á teningunum hjá kollegum hans í greininni.

„Það er enginn að kvarta allavega.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×