Viðskipti innlent

Beið spenntur eftir útspili stjórnvalda en féllust svo hendur

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Arctic Adventure sérhæfir sig í hvers kyns ferðum til ferðamanna.
Arctic Adventure sérhæfir sig í hvers kyns ferðum til ferðamanna. Mynd/Arctic Adventures

Forstjóri Arctic Adventures kallar eftir frekari mótvægisaðgerðum frá stjórnvöldum til handa ferðaþjónustunni, vegna þeirra skakkafalla sem greinin hefur orðið fyrir í faraldrinum. Hann hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum með aðgerðirnar sem kynntar voru í gær, honum hafi í raun fallist hendur eftir útsendinguna úr Safnahúsinu.

Forstjórinn er ekki einn um þessa skoðun. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar sagði þannig í samtali við fréttastofu í gær að meira þurfi að gera til að taka á sérstæðum vanda geirans. Ferðaþjónustan hafi orðið fyrir miklu meira og langvinnara tekjufalli en aðrir geirar. Framkvæmdastjóri Grey Line tók í sama streng. „Ef ferðaþjónustan á að vera til staðar þegar ferðamenn koma loksins aftur, þá þarf að halda í henni lífi og frysta lánagreiðslur.“

Styrmir Þór Bragason, forstjóri Arctic Adventures, reifar sambærilegar áhyggjur í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í dag.

„Ég settist niður í gær og beið spenntur eftir útspili stjórnvaldi til handa fyrirtækja sem lent hafa í skakkaföllum vegna tíðnefnds Covid faraldurs. Þegar útsendingu lauk var ekki laust við að manni féllust hendur. Ekki var minnst svo mikið sem einu orði á stærstu atvinnugrein landsins,“ skrifar Styrmir. „Vilji Íslendingar tryggja bestu lífskjör heims, þarf að tryggja að sú atvinnugrein sem þau lífkjör hefur skapað verði til staðar þegar yfir líkur.“

Greiddu rúmlega 500 milljóna arð

Mikill uppgangur hefur verið hjá Arctic Adventures á síðustu árum, samhliða fjölgun ferðamanna. Þannig hagnaðist Straumhvarf ehf., rekstrarfélag Arctic Adventures, um 747 milljónir samkvæmt ársreikningi síðasta árs, tvöfalt meira árið á undan. Eigið fé jókst um næstum milljarð á milli ára og hefur félagið greitt næstum 730 milljóna arð til hluthafa undanfarin tvö rekstarár, þar af um 530 milljónir eftir uppgjör síðasta árs. Arctic Adventures var þannig metið á 12 milljarða króna í ársreikningi Icelandic Tourist Fund í fyrra.

Styrmir segir að fyrirtæki sitt hafi í fyrra tekið við um 550 þúsund viðskiptavinum. Heildarfjöldi starfsmanna hafi verið, þegar mest á lét, á fjórða hundrað. Félagið hafi varið háum fjárhæðum í margvíslega vöru-, markaðs- og hugbúnaðarþróun á síðustu árum, auk þess að verja 350 milljónum króna í fyrra í að auglýsa Ísland sem ferðamannastað.

Ljós við enda ganganna

Hann segir að þrátt fyrir yfirstandandi frost sé enn nokkur áhugi á Íslandi sem ferðamannalandi. Fyrirtæki hans berist fjöldi fyrirspurna um ferðalög til landsins sem þó eru ragir við að panta ferðir vegna ríkjandi óvissu. Það bendi til, að mati Styrmis, að ljós sé við enda ganganna en stjórnvöld verði þó að gera meira.

„Allt tal um uppbyggingu íslensks efnahagslífs án þess að tryggja blómlega ferðaþjónustu þegar að covid krísunni líkur, er á mannamáli, tóm tjara,“ skrifar Styrmir og bætir við. „Við í ferðaþjónustunni köllum eftir því að þeir einstaklingar sem að nú taka hinu stóru ákvarðanir, átti sig á því hvað er í húfi fyrir heimilin í landinu, það eru jú þau sem hagnast mest þegar vel árar.“


Tengdar fréttir

Segja frekari aðgerðir nauðsynlegar gagnvart ferðaþjónustunni

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir jákvætt að ríkisstjórnin aðstoði fyrirtæki sem þurfi á að halda. Ljóst sé að ferðaþjónustufyrirtæki geti nýtt úrræði í aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar en enn sé ljóst að taka þurfi á sérstæðum vanda geirans vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×