Beið spenntur eftir útspili stjórnvalda en féllust svo hendur Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. apríl 2020 13:03 Arctic Adventure sérhæfir sig í hvers kyns ferðum til ferðamanna. Mynd/Arctic Adventures
Forstjóri Arctic Adventures kallar eftir frekari mótvægisaðgerðum frá stjórnvöldum til handa ferðaþjónustunni, vegna þeirra skakkafalla sem greinin hefur orðið fyrir í faraldrinum. Hann hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum með aðgerðirnar sem kynntar voru í gær, honum hafi í raun fallist hendur eftir útsendinguna úr Safnahúsinu. Forstjórinn er ekki einn um þessa skoðun. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar sagði þannig í samtali við fréttastofu í gær að meira þurfi að gera til að taka á sérstæðum vanda geirans. Ferðaþjónustan hafi orðið fyrir miklu meira og langvinnara tekjufalli en aðrir geirar. Framkvæmdastjóri Grey Line tók í sama streng. „Ef ferðaþjónustan á að vera til staðar þegar ferðamenn koma loksins aftur, þá þarf að halda í henni lífi og frysta lánagreiðslur.“ Styrmir Þór Bragason, forstjóri Arctic Adventures, reifar sambærilegar áhyggjur í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í dag. „Ég settist niður í gær og beið spenntur eftir útspili stjórnvaldi til handa fyrirtækja sem lent hafa í skakkaföllum vegna tíðnefnds Covid faraldurs. Þegar útsendingu lauk var ekki laust við að manni féllust hendur. Ekki var minnst svo mikið sem einu orði á stærstu atvinnugrein landsins,“ skrifar Styrmir. „Vilji Íslendingar tryggja bestu lífskjör heims, þarf að tryggja að sú atvinnugrein sem þau lífkjör hefur skapað verði til staðar þegar yfir líkur.“ Greiddu rúmlega 500 milljóna arð Mikill uppgangur hefur verið hjá Arctic Adventures á síðustu árum, samhliða fjölgun ferðamanna. Þannig hagnaðist Straumhvarf ehf., rekstrarfélag Arctic Adventures, um 747 milljónir samkvæmt ársreikningi síðasta árs, tvöfalt meira árið á undan. Eigið fé jókst um næstum milljarð á milli ára og hefur félagið greitt næstum 730 milljóna arð til hluthafa undanfarin tvö rekstarár, þar af um 530 milljónir eftir uppgjör síðasta árs. Arctic Adventures var þannig metið á 12 milljarða króna í ársreikningi Icelandic Tourist Fund í fyrra. Styrmir segir að fyrirtæki sitt hafi í fyrra tekið við um 550 þúsund viðskiptavinum. Heildarfjöldi starfsmanna hafi verið, þegar mest á lét, á fjórða hundrað. Félagið hafi varið háum fjárhæðum í margvíslega vöru-, markaðs- og hugbúnaðarþróun á síðustu árum, auk þess að verja 350 milljónum króna í fyrra í að auglýsa Ísland sem ferðamannastað. Ljós við enda ganganna Hann segir að þrátt fyrir yfirstandandi frost sé enn nokkur áhugi á Íslandi sem ferðamannalandi. Fyrirtæki hans berist fjöldi fyrirspurna um ferðalög til landsins sem þó eru ragir við að panta ferðir vegna ríkjandi óvissu. Það bendi til, að mati Styrmis, að ljós sé við enda ganganna en stjórnvöld verði þó að gera meira. „Allt tal um uppbyggingu íslensks efnahagslífs án þess að tryggja blómlega ferðaþjónustu þegar að covid krísunni líkur, er á mannamáli, tóm tjara,“ skrifar Styrmir og bætir við. „Við í ferðaþjónustunni köllum eftir því að þeir einstaklingar sem að nú taka hinu stóru ákvarðanir, átti sig á því hvað er í húfi fyrir heimilin í landinu, það eru jú þau sem hagnast mest þegar vel árar.“
Ferðamennska á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Tengdar fréttir Segja frekari aðgerðir nauðsynlegar gagnvart ferðaþjónustunni Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir jákvætt að ríkisstjórnin aðstoði fyrirtæki sem þurfi á að halda. Ljóst sé að ferðaþjónustufyrirtæki geti nýtt úrræði í aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar en enn sé ljóst að taka þurfi á sérstæðum vanda geirans vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. 21. apríl 2020 22:35 Mest lesið Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Fara fram á lögbann á Isavia Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Sjá meira
Segja frekari aðgerðir nauðsynlegar gagnvart ferðaþjónustunni Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir jákvætt að ríkisstjórnin aðstoði fyrirtæki sem þurfi á að halda. Ljóst sé að ferðaþjónustufyrirtæki geti nýtt úrræði í aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar en enn sé ljóst að taka þurfi á sérstæðum vanda geirans vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. 21. apríl 2020 22:35