Vildi hann kannski vel? Sóllilja Guðmundsdóttir skrifar 10. desember 2013 06:00 Ég þekkti eitt sinn stúlku sem sagði mér sögu sem mig langar að deila með ykkur. Það var hásumar og vinahópur nokkur ákvað að skella sér saman á útihátíð. Þau fóru á tónleika þar sem alls kyns frægir listamenn tróðu upp og skemmtu sér konunglega. Ein stúlkan úr hópnum kynntist strák, myndarlegum og flottum íþróttastrák, og þau tóku spjall saman. Vinir hennar vissu meira að segja hver hann var; en hann var víst stórt nafn í menntaskólanum sínum og þótti mikill sjarmör. Stúlkan varð spennt fyrir honum og saman gengu þau afsíðis. Þau komu sér fyrir stutt frá tónleikastaðnum og létu vel hvort að öðru. Skyndilega tók hann í hönd hennar og leiddi hana snöggt á fætur og spurði hvort hún vildi ekki koma með inn í tjaldið hans. Það var ekki laust við að fljótfærnin stressaði hana eilítið upp… eða var þetta spenna? Hún sýndi mótþróa í fyrstu en samþykkti svo að fara með honum. Stúlkan gerði sér ekki grein fyrir því að um nauðgun hefði verið að ræða fyrr en nokkrum mánuðum síðar. Hún sagði nei, hún streittist meira að segja á móti, hún klæddi sig aftur í, hún sneri sér undan og hún reyndi að stama upp afsökunum til þess að fá hann til að hætta. En hún kyssti hann til baka, hún fór með honum inn í tjald og hún leyfði honum að koma sínu fram í fyrstu. Var þetta kannski henni að kenna? Henni fannst hún einhvern veginn ekki geta skilgreint þetta sem nauðgun. Síðar lærði hún í skólanum þá einföldu og augljósu skilgreiningu að um nauðgun væri að ræða þegar annar aðili gæfi ekki fullt samþykki.Engin grá lína Þetta vitum við öll. En skiljum við þetta öll? Það er engin grá lína sem skilur á milli nauðgunar og samfara. Aðeins 10-11% fórnarlamba nauðgana og kynferðisofbeldis hér á landi tilkynna brotið til lögreglu skv. tölum frá Stígamótum. Ástæður þess að fórnarlömb kynferðisofbeldis stíga ekki fram eru nokkrar. Fórnarlömb trúa oft ekki að eitthvað svo slæmt hafi hent sig, þau fara í afneitun. Önnur fórnarlömb eru hrædd við útilokun; stígi þau fram fái þau einhvern á móti sér, t.d. fjölskyldu eða vini – og í tilfelli ofangreinds dæmis: heilan vinahóp af vinsælum krökkum í valdastöðu í sama samfélagi. Hin síðasta og líklega mest sláandi ástæða er að mörg fórnarlömb eru hreinlega ekki viss um að um nauðgun hafi verið að ræða; hvort brotamaðurinn hafi nokkuð ætlað sér að meiða þau. Vildi hann kannski vel? Þessa hugsun getum við rakið til fjölmiðla. Þeir sýna okkur staðlaða mynd af skelfilegum, vopnuðum nauðgara í dimmu húsasundi. Þeir sýna okkur ekki „venjulega“ einstaklinginn – og hvað þá myndarlega og vinsæla einstaklinginn – sem fremur verknaðinn í heimahúsi eða jafnvel á stefnumóti. Fólk treystir heldur ekki réttarkerfinu vegna fjölda niðurfellinga í þessum málum. Því miður eru nauðgarar ekki sjálflýsandi hætta sem við getum varað fólk við. Í flestum tilvikum þekkir fórnarlambið geranda sinn. Dæmið sem ég tek er því lýsandi fyrir margar nauðganir. Dæmið er ekki sláandi eða blóðugt en engu að síður grafalvarlegt. Afleiðingin er sú að fólk stígur oft fram árum eða áratugum eftir að ofbeldið var framið. Við eigum ekki að hræðast alla sem við mætum úti á götu en við þurfum að vera meðvituð um vandamálið. Venjulegur hversdagsleikinn má ekki hlífa nauðgaranum. Það þarf að opna umræðuna um kynferðisofbeldi og tala jafn opinskátt um það eins og önnur ofbeldisbrot. Slasaður einstaklingur fær þegar í stað læknishjálp þar sem áverkar hans eru sýnilegir. Einstaklingur, sem er beittur kynferðislegu ofbeldi og hefur oft ekki sýnilega áverka, þarf að ferðast langa leið og útskýra, jafnvel fyrir nokkrum, af hverju hann hyggst leita sér aðstoðar. Kynferðisofbeldi á sér stað allt í kringum okkur og því verðum við að horfast í augu við vandamálið. Fyrr fáum við ekki fórnarlömb til að tala. Með því að þegja gerum við engum greiða – nema nauðgaranum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Íslenskir hermenn? Jón Pétur Zimsen Skoðun Af hverju upplifa sumir kjósendur fjarlægð frá Samfylkingunni? Valerio Gargiulo Skoðun Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir Skoðun „Er pláss fyrir sjálfstæða sjónvarpsmiðla á Íslandi?“ Hólmgeir Baldursson Skoðun Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun Hvaða áhrif hefði ESB-aðild á verðbólguna? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Er aithingi.is hættulegt lýðræðinu? Kristján Logason Skoðun Ekki loka á okkur Kristín María Birgisdóttir Skoðun Ár í eldlínunni Einar Bárðarson Skoðun Ólafur Ragnar og handboltinn Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða áhrif hefði ESB-aðild á verðbólguna? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er aithingi.is hættulegt lýðræðinu? Kristján Logason skrifar Skoðun Rafbyssugríman er fallin Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju upplifa sumir kjósendur fjarlægð frá Samfylkingunni? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar Skoðun Ár í eldlínunni Einar Bárðarson skrifar Skoðun Íslenskir hermenn? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun „Er pláss fyrir sjálfstæða sjónvarpsmiðla á Íslandi?“ Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Húsnæði á Íslandi er helmingi minna á færi okkar en það var fyrir tuttugu árum Arnar Kjartansson skrifar Skoðun „Einsdæmi um réttindamissi“ Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Ekki loka á okkur Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Ykkur er óhætt að treysta okkur Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fallegu Dalirnir við þjóðveg 60 Þórunn Magnea Jónsdóttir skrifar Skoðun Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Áskorun um opnun þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar um einhverfu Telma Sigtryggsdóttir skrifar Skoðun Bæn grunnskólakennara – opið bréf til nýs meirihluta í Reykjavík um menntamál Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er það glæpur að vilja stunda ábyrgar fiskveiðar? Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Að slá gras á umferðareyjum er það mikilvægara en geðheilsa barna? Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvar er Ísland kynnt sem umsóknarríki? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Hafró ver hvalinn en gleymir fiskinum Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Einmitt, alveg hreint stórkostleg vörn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað verður gert á aðalfundinum á morgun Eiríkur? Björn Sævar Einarsson skrifar Skoðun Ólafur Ragnar og handboltinn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Lítil bjalla, stórt hjarta: Hvernig við getum verndað bæði kisur og fugla Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Erfitt að veiða ufsa án kvóta í þorski Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar Skoðun Jæja kosningunum lokið Elías B. Elíasson skrifar Skoðun Hættum að hvísla um loðnu og gætum hagsmuna íbúa Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Staðan í viðræðum Bandaríkjanna og Grænlands Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Nú er tækifærið - vinnum saman að betri grunnskóla Hólmfríður Arna Þórisdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin bíður ekki eftir Alþingi - opnum aithingi.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,Rafn Steingrímsson skrifar Sjá meira
Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir Skoðun
Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Skoðun Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar
Skoðun Húsnæði á Íslandi er helmingi minna á færi okkar en það var fyrir tuttugu árum Arnar Kjartansson skrifar
Skoðun Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar
Skoðun Áskorun um opnun þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar um einhverfu Telma Sigtryggsdóttir skrifar
Skoðun Bæn grunnskólakennara – opið bréf til nýs meirihluta í Reykjavík um menntamál Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Lítil bjalla, stórt hjarta: Hvernig við getum verndað bæði kisur og fugla Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar
Skoðun Gervigreindin bíður ekki eftir Alþingi - opnum aithingi.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,Rafn Steingrímsson skrifar
Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir Skoðun
Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun