Birgir Leifur Hafþórsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar varð í dag Íslandsmeistari í golfi í sjöunda skipti á ferlinum og setti þar með nýtt met en Íslandsmótið í ár fór fram á Jaðarsvelli á Akureyri.
Birgir Leifur kláraði hringina fjóra á 276 höggum eða átta höggum undir pari en hann endaði einu höggi á undan þeim Bjarka Péturssyni úr GB og Axel Bóassyni úr Keili sem báðir voru á sjö höggum undir pari.
Þetta er í þriðja sinn á fjórum árum sem Birgir Leifur fagnar sigri á Íslandsmótinu. Hann bætir með þessum sigri met þeirra Úlfars Jónssonar og Björgvins Þorsteinssonar sem báðir urðu sex sinnum Íslandsmeistarar á sínum ferli.
Birgir Leifur vann fyrsta Íslandsmeistaratitil sinn árið 1996 eða fyrir tuttugu árum síðan. Hann vann einnig 2003, 2004, 2010, 2013 og 2014.
Birgir Leifur átti frábæran lokadag og tryggði sér sigurinn með óaðfinnanlegri spilamennsku í dag. Birgir Leifur lék holurnar á 66 höggum eða átta höggum undir pari.
Hann fékk fimm fugla og tapaði ekki einu einasta höggi á hringnum. Birgir Leifur fór í svaka stuð á lokakaflanum og spilaði sex síðustu holurnar á þremur höggum undir pari.
Birgir Leifur lék fyrsta hringinn á -2, annan hringinn á -1 og þriðja hringinn á pari. Hann fékk fimmtán fugla á holunum 72 en tapaði höggi á sex holum þar af var einn skrambi á degi þrjú.
Birgir Leifur Íslandsmeistari í sjöunda sinn | Nú sá sigursælasti frá upphafi
Tengdar fréttir

Sögubækurnar bíða Birgis Leifs
Birgi Leifi Hafþórssyni og Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur er spáð Íslandsmeistaratitlinum í höggleik en mótið hefst á Jaðarsvelli á Akureyri í dag. Vinni Birgir verður hann sigursælastur í sögunni.

Birgi Leif og Ólafíu Þórunni spáð titlinum á Jaðarsvelli
Íslandsmótið í höggleik hefst á Jaðarsvelli á Akureyri á morgun.

Fimm jöfnuðu sólarhringsgamalt vallarmet og Axel er í forystu
Axel Bóasson úr Keili er með eins höggs forskot eftir annan daginn á Íslandsmótinu í golfi sem fer fram þessa dagana á á Jaðarsvelli á Akureyri.