Birgi Leif og Ólafíu Þórunni spáð titlinum á Jaðarsvelli Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. júlí 2016 12:51 Ólafía Þórunn og Birgir Leifur með Íslandsmeistarabikarana 2016. vísir/daníel
Atvinnukylfingarnir Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, verða Íslandsmeistarar í höggleik 2016 ef spá sérfræðinga Golfsambands Íslands gengur upp. Íslandsmótið hefst á morgun en að þessu sinni fer það fram á Jaðarsvelli á Akranesi. Allir bestu kylfingar þjóðarinnar verða með eins og þau Birgir Leifur og Ólafía sem fögnuðu síðast sigri á Leirdalsvelli fyrir tveimur árum. Birgir Leifur fékk 98 stig í kosningu sérfræðinganna og vann yfirburðarsigur í henni. Gísla Sveinbergssyni úr GK er spáð öðru sæti og Axel Bóassyni þriðja sætinu. Ólafía Þórunn fékk 107 stig hjá konunum en rætist spáin verður Guðrún Brá Björgvinsdóttir í öðru sæti og Valdís Þóra Jónsdóttir í þriðja sæti.Spáin fyrir Íslandsmótið 2016:Karlaflokkur: 1. Birgir Leifur Hafþórsson, GKG (98) 2. Gísli Sveinbergsson, GK (69) 3. Axel Bóasson, GK (50) 4. Andri Þór Björnsson, GR (41) 5. Þórður Rafn Gissurarson, GR (35)Kvennaflokkur: 1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR (107) 2. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK (87) 3. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL (67) 4. Signý Arnórsdóttir, GK, (47) 5. Sunna Víðisdóttir, GR (18)
Golf Mest lesið Segir Friðrik hafa elt sig og áreitt eftir leik: „Mér fannst ég ekki örugg“ Körfubolti Toppsætið tryggt með tveimur mörkum á tveimur mínútum Enski boltinn Bournemouth slapp með sigur eftir stangarskot í uppbótartíma Enski boltinn Farsæll ferill á enda: „Langar að vera í fríi um helgar og á kvöldin“ Íslenski boltinn Hafnar því að hafa elt Morris: „Ég var ekki með nein leiðindi“ Körfubolti Svíinn sá um Arsenal með frábærum skalla Enski boltinn Axel Óskar farinn frá KR og velur úr tilboðum Íslenski boltinn Of ungur fyrir Man. Utd að mati Hareide Enski boltinn Framkvæmdir á Laugardalsvelli: Sex vikur frá sáningu í fullkominn völl Fótbolti Gary Martin búinn að finna sér nýtt lið Enski boltinn Fleiri fréttir Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira